Atvinnulausir fái desemberuppbót 28. maí 2011 06:30 Desemberuppbót atvinnulausra gæti orðið 63 þúsund krónur að hámarki samkvæmt frumvarpi Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra. Fréttablaðið/GVA
Atvinnuleysi mældist 8,1 prósent í apríl. Atvinnulausum fækkaði því um 0,5 prósentustig milli mánaða. Atvinnulausir voru að meðaltali 13.262 í mánuðinum. Á höfuðborgarsvæðinu mældist atvinnuleysi 8,7 prósent en á landsbyggðinni var það 6,9 prósent. Meðal karla var atvinnuleysi 8,6 prósent en kvenna 7,4 prósent. Þá hefur 59 prósent atvinnulausra verið það í meira en sex mánuði. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum tölum frá Vinnumálastofnun sem lagðar voru fyrir í ríkisstjórn í gær en staðan á vinnumarkaði var til umræðu á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. Dregið hefur hægar úr atvinnuleysi hér á landi en spár gerðu ráð fyrir en undanfarna mánuði hefur ríkisstjórnin sett fram ýmis úrræði til að vinna gegn atvinnuleysinu. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi um málefni atvinnulausra. Meðal þess sem þar kemur fram er að atvinnulausir fái greidda desemberuppbót sem gæti orðið allt að 63 þúsund krónur á þessu ári. Einnig er gert ráð fyrir ríkari upplýsingaskyldu atvinnulausra og stofnana til Vinnumálastofnunar með það að markmiði að gera stofnuninni betur kleift að hafa eftirlit með réttmæti umsókna um bætur auk fleiri atriða. Þá mun atvinnuleitandi sem tekur þátt í starfstengdu vinnumarkaðsúrræði ekki skerða rétt sinn til atvinnuleysisbóta með þátttökunni, verði frumvarpið samþykkt. - mþl
Mest lesið Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Sjá meira