Viðskipti innlent

Eldsneytisverðið gæti skaðað ferðaþjónustu

Erna hauksdóttir
Erna hauksdóttir
Hækkandi verð á eldsneyti veldur ferðaþjónustufyrirtækjum hér á landi miklum áhyggjum þar sem viðbúið er að mjög muni draga úr ferðalögum innanlands í sumar. Samtök ferðaþjónustunnar kalla eftir lækkun eldsneytisskatta.

Ef verðið á bensíni í dag er miðað við verð fyrir réttu ári síðan er munurinn um 16 krónur á lítrann. Lítraverð hefur hækkað frá um það bil 212 krónum upp í um 228 krónur í ár. Um miðjan mars í fyrra hafði verð að vísu stigið afar hratt á stuttum tíma og átti eftir að lækka verulega í verðstríði olíufélaganna yfir sumarmánuðina.



Þrátt fyrir það sýna tölur Vegagerðarinnar nokkurn samdrátt í umferð um helstu vegi landsins frá 2009 til 2010 fyrra og fyrstu tölur þessa árs gefa til kynna að framhald verði á í ár.

„Við höfum mjög miklar áhyggjur af hækkunum eldsneytisverðs," segir Erna Hauksdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, í samtali við Fréttablaðið.

„Það er bæði vegna flugsins og útgerðar á rútum og öðrum farartækjum, en líka vegna þess hversu dýrt það er fyrir almenning að keyra sína einkabíla. Ef ríkisstjórnin lækkar ekki skatta sína á eldsneyti getur þetta haft mjög slæm áhrif á ferðaþjónustuna út allt land."

Þó eldsneytisgjöld miðist við vissa krónutölu af útsöluverði hvers lítra, leggst virðisaukaskattur á alla upphæðina. Skattheimtan eykst því í hlutfalli við hækkandi innkaupaverð olíufélaganna hér á landi.

Erna segir hvorki almenning né fyrirtæki þola „þessar gengdarlausu hækkanir" og kallar eftir því að ríkisstjórnin sjái til þess að snúið verði aftur til þeirrar skattaupphæðar sem gert var ráð fyrir í byrjun.

Erna játar því að útlit sé fyrir að erlendir ferðamenn fjölmenni hingað til lands í sumar og þeir muni sennilega ekki mikla fyrir sér bensínverð, sem er sambærilegt og í þeirra heimalöndum.

„En fyrir Íslendinga er þetta mjög stórt vandamál. Það kostar augljóslega meira að keyra nú í sumar en í fyrrasumar. Þess vegna er svo mikilvægt að draga úr skattheimtu til þess að létta undir með almenningi og atvinnulífinu."

Ríkisstjórnin hefur skipað starfshóp um viðbrögð við hækkandi eldsneytisverði og er fyrstu tillagna hópsins að vænta þann fyrsta apríl.

- þj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×