"Delete að lestri loknum“ 11. mars 2011 06:00 Greiðslukort eru mikið notuð í öllum viðskiptum hér á landi. Líklegt er að hækkanir á þjónustugjöldum kortafyrirtækja lendi á neytendum. Fréttablaðið/Stefán
Halldór Guðbjarnason Forstjóri Greiðslumiðlunar VISA-Ísland fór fram á það við bankastjóra Landsbanka Íslands að bankinn aðstoðaði við að beita stóra viðskiptavini VISA þrýstingi til að þeir samþykktu hærri gjöld frá kortafyrirtækinu. Samskiptin áttu sér stað í tölvupósti í ársbyrjun 2005. Bankastjórinn var Halldór J. Kristjánsson og forstjórinn Halldór Guðbjarnason. Bankastjóri Landsbankans var einnig stjórnarformaður Greiðslumiðlunar. Tölvupósturinn er meðal gagna sem Samkeppniseftirlitið lagði hald á í rannsókn á ólögmætu samráði Greiðslumiðlunar hf., Kreditkorts hf. (Europay) og Fjölgreiðslumiðlunar hf. til að klekkja á nýjum keppninauti á markaði kortaviðskipta PBS/Kortaþjónustunni. Rannsókninni lauk með sátt í janúar 2008, tveimur árum eftir að Kortaþjónustan lagði fram kæru sína, þar sem fyrirtækin þrjú játuðu á sig brot og féllust á að greiða samtals 735 milljónir króna í stjórnvaldssekt. Úrskurðarnefnd samkeppnismála féllst í fyrrahaust á beiðni Kortaþjónustunnar um að fá afhent gögnin sem ákvörðun Samkeppniseftirlitsins árið 2008 byggði á. Valitor (áður Greiðslumiðlun) hafði kært til úrskurðarnefndarinnar. „Ég mun kurteislega tilk. Ragnari [Önundarsyni, þá forstjóra Kreditkorts hf.] á eftir að við ætlum að hefja kaup á Raðgreiðslusamningum og væntum þess að hann standi ekki á móti því að við kaupum Kreditkortasamninga eins og þeir hafa getað keypt VISAsamninga," skrifar Halldór nafna sínum í Landsbankanum í fyrrnefndum tölvupósti. „PBS [Kortaþjónustan] hóf herferð í nóv. sl. til að reyna að auka viðskiptin. Eitthvað hefur þeim orðið ágengt svo við verðum eina ferðina enn að fara í átak gegn þeim." Forstjóri VISA-Ísland nefnir í póstinum ÁTVR og Haga sem fyrirtæki sem greitt hafi lægst gjöld, en eigi að reyna að fá til að samþykkja hækkun. „Má vera að við þyrftum einhverja aðstoð frá ykkur, viðskiptabanka Haga." Hagar voru þá, líkt og nú, einn stærsti eigandi matvöruverslana í landinu og ÁTVR í ríkiseigu. Í gögnum Samkeppniseftirlitsins er fjöldi tölvupósta. Margir eru á milli Halldórs Guðbjarnasonar og Ragnars Önundarsonar. Þá má sjá hvernig Logi Ragnarsson, forstjóri Fjölgreiðslumiðlunarinnar (sem frá og með síðustu áramótum varð að fullu í eigu Seðlabankans og nefnist nú Greiðsluveitan) áframsendi í nóvember 2002 erindi Jóhannesar I. Kolbeinssonar, forstjóra Kortaþjónustunnar, beint á Halldór Guðbjarnason, Ragnar Önundarson og fleiri starfsmenn fyrirtækja þeirra. Með þessari sendingu fréttu kortafyrirtækin tvö af innkomu Kortaþjónustunnar á markaðinn og hófu smíð sérreglna um íslenska markaðinn til að torvelda Kortaþjónustunni að hefja hér viðskipti. Til stendur að birta öll gögnin á vefnum Kortasamráð.is, en hann er í eigu Kortaþjónustunnar. Fyrirtækið hefur höfðað einkamál á hendur Valitor, Borgun og Greiðsluveitunni. Logi Ragnarsson gegnir enn þá starfi forstjóra Greiðsluveitunnar. Við starfi forstjóra Kreditkorta (nú Borgunar) tók Haukur Oddsson, en Ragnar er varaformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna og varaformaður Framtakssjóðs Íslands. Höskuldur Ólafsson, nú forstjóri Arion banka, tók við af Halldóri sem forstjóri VISA-Ísland (nú Valitor). olikr@frettabladid.isRagnar ÖnundarsonJóhannes I. Kolbeinsson
Mest lesið Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Sjá meira