Rory McIlroy er með frábært æfingasvæði í bakgarðinum Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 4. júlí 2011 23:48 Norður –Írinn Rory McIlroy hefur vakið gríðarlega athygli frá því hann sigraði á opna bandaríska meistaramótinu í golfi á dögunum. AP
Norður –Írinn Rory McIlroy hefur vakið gríðarlega athygli frá því hann sigraði á opna bandaríska meistaramótinu í golfi á dögunum. Hinn 22 ára gamli kylfingur veit vart aura sinna tal eftir velgengnina undanfarin ár og hann hefur látið útbúa magnað æfingasvæði í bakgarðinum á heimili sínu.Smelltu hér til að sjá myndbandið. Fréttamenn BBC, sem eru að vinna að heimildarþætti um Rory, fengu að skoða aðstöðuna. Þar er hægt að líkja eftir aðstæðum á nánast hvaða velli sem er og vallarstarfsmenn hafa gert „bakgarðinn" að glæsilegum leikvelli sem margir kylfingar öfunda Rory af. Rory McIlroy er sigurstranglegur fyrir opna breska meistaramótið sem fer fram á Sandwich vellinum um miðjan júlí. Fátt ætti að koma honum á óvart á því móti ef miðað er við æfingaaðstöðuna sem hann hefur yfir að ráða. Sjón er sögu ríkari.
Golf Mest lesið Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Sjáðu Loga Geirs hengja Frakkann og tryggja sér titil Sport Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Fótbolti Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Körfubolti Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Fleiri fréttir Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira