Nítján milljarða viðskipti með hlutabréf 4. apríl 2011 12:47
Heildarviðskipti með hlutabréf námu 18.799 milljónum í mars eða 817 milljónum á dag. Þessu til samanburðar var veltan með hlutabréf í febrúar 5.540 milljónir eða 277 milljónir á dag. Mest voru viðskipti með bréf Marels 13.560 milljónir, bréf Össurar 3.536 milljónir og bréf Icelandair 1.207 milljónir. Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði lítillega á milli mánaða (0,6%) og stendur í tæpum 1.000 stigum. Heildarviðskipti með skuldabréf námu 202 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 8,8 milljarða veltu á dag samanborið við 9,7 milljarða veltu á dag í febrúarmánuði. Mest voru viðskipti með ríkisbréf 133 milljarðar en viðskipti með íbúðarbréf námu 564 milljörðum. „Viðskipti á skuldabréfamarkaði voru frekar róleg framan af mánuðinum og menn héldu að sér höndum þar til skýrsla Seðlabankans um afnám gjaldeyrishafta var lögð fram. Markaðurinn tók síðan ágætlega við sér og síðasta vika var sú næst veltumesta á árinu. Mikla veltu á hlutabréfamarkaði má rekja til stórra viðskipta með bréf Össurar og Marels, en Horn fjárfestingarfélag seldi sinn hlut í Marel fyrir rúma 12 milljarða. Þess fyrir utan voru viðskiptin á svipuðum nótum og undanfarna mánuði , en við væntum meiri virkni þar með nýskráningum fyrirtækja,“ segir Magnús Harðarson, forstöðumaður viðskiptasviðs NASDAQ OMX Iceland í tilkynningu. Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 86,1% (71% á árinu), Virðing með 4% (4% á árinu) og Íslandsbanki með 2,5% (9,3% á árinu). Á skuldabréfamarkaði var MP Banki með mestu hlutdeildina 28% (27,2% á árinu), Íslandsbanki með 21,6% (22,6% á árinu) og Landsbankinn með 17,1% (18,6% á árinu).
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Sjá meira