Íslenskur tölvuleikur fékk milljóna styrk í Svíþjóð 13. maí 2011 12:51
Nýtt íslenskt tölvuleikjafyrirtæki, Plain Vanilla, fékk í gær 400.000 danskra kr., eða um 8,8 milljóna kr., styrk frá Nordic Game Program. Styrkurinn var afhentur við hátíðlega athöfn í Malmö, Svíþjóð þar sem 15 norræn tölvuleikjafyrirtæki fengu afhenda þróunarstyrki. Í tilkynningu segir að Plain Vanilla þróar nú tölvuleik fyrir snjallsíma og spjaldtölvur sem heitir The Moogies en leikurinn er ætlaður fyrir börn á aldrinum 2-6 ára. The Moogies er tölvuleikur þar sem barnið talar við og leikur sér við hóp af teiknimyndadýrum sem hafa verið þróaðar sérstaklega fyrir leikinn. Mikil áhersla hefur verið lögð á persónusköpun og útlit í leiknum, en hann hefur verið í þróun hjá Plain Vanilla í sex mánuði. Áætlað er að gefa út fyrsta leikinn um The Moogies í sumar en Plain Vanilla ætlar sér að gefa út röð af leikjum og öðru barnaefni í sama myndheimi og The Moogies. Plain Vanilla var stofnað í október 2010 með þá sýn að búa til hágæða tölvuleiki fyrir börn sem væru í senn þroskandi og skemmtilegir. Með tilkomu nýrra dreifingarleiða á tölvuleikjum í gegnum netið gefst íslenskum leikjafyrirtækjum kostur á að bjóða upp á framleiðslu sína á öllum markaðssvæðum í heiminum.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Sjá meira