Viðskipti innlent

Nýherji hlýtur Microsoft vottun í Lync 2010

Nýherji hefur hlotið vottun hjá Microsoft í Lync 201 samskiptalausnum.  Lync er heildarlausn samskipta fyrir fyrirtæki þar sem samskiptin eru ekki lengur eingöngu bundin við símtæki heldur getur notandi einnig valið að eiga samskipti í gegnum m.a. netspjall og fjarfundi með fullri samþáttun við Microsoft Office.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýherja. Þar segir að með því að nota Lync geti fyrirtæki náð hagræði í fjarskipta- og ferðakostnaði auk þess sem umtalsverður vinnusparnaður verður hjá notendum.

Nýherji hefur lagt áherslu að auka þekkingu og þróa lausnir í Microsoft Lync en mikil áhugi er hjá fyrirtækjum að nýta Lync til að hagræða í samskiptum, segir Þorvaldur Jacobsen framkvæmdastjóri Tæknisviðs Nýherja.

Microsoft Lync er samhæft öðru vöruframboði Nýherja á sviði samskiptalausna, m.a. lausnum frá Cisco, Avaya, Polycom og Plantronics auk eldri kerfa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×