Landsbankinn reiknar með óbreyttum stýrivöxtum 15. ágúst 2011 10:29 Peningastefnunefnd Seðlabankans.
Hagfræðideild Landsbankans býst fastlega við því að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum. Þó er ekki hægt að útiloka hækkun í ljósi yfirlýsinga nefndarinnar og Seðlabankastjóra að undanförnu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá deildinni. Á miðvikudag mun Seðlabankastjóri tilkynna vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans. “Undanfarin tvö ár hefur Anne Sibert, einn nefndarmanna, verið fjárverandi á ágústfundi Peningastefnunefndar vegna sumarleyfis. Líklegt má telja að svo verði einnig að þessu sinni en við það eykst vægi Seðlabankastjóra í nefndinni þar sem hans atkvæði ræður úrslitum falli atkvæðagreiðslan á jöfnu. Þegar svona háttar til er athyglivert að þrír af fjórum nefndarmönnum eru innanbúðarmenn í Seðlabankanum,” segir í tilkynningunni. "Þrátt fyrir að verðbólga hafi aukist umtalsvert undanfarna mánuði myndi vaxtahækkun við núverandi aðstæður í hagkerfinu ekki hafa teljandi áhrif til lækkunar verðbólguvæntinga. Helstu drifkrafta verðbólgunnar um þessar mundir má rekja til veikingar krónunnar, hækkun hrávöruverðs á heimsmarkaði og hækkun fasteigna- og leiguverðs. Þessir þættir eru allir utan áhrifasviðs hinna hefðbundnu stýritækja Seðlabanka Íslands. Hækkun verðbólgunnar og verðbólguvæntinga gerir að verkum að raunstýrivextir eru nú neikvæðir. Það er hinsvegar ekki óeðlilegt í ljósi þess hversu veikburða efnahagslífið er um þessar mundir og því óþarft fyrir Seðlabankann að bregðast sérstaklega við þeirri stöðu. Raunstýrivextir hafa t.d. verið neikvæðir í helstu viðskiptalöndum Íslands um langt skeið þrátt fyrir að hagvöxtur þar hafi verið mun meiri en hér á landi. Undanfarnar vikur hafa einkennst af miklum óróa á fjármálamörkuðum heimsins og mikil óvissa ríkir nú um hagvaxtarhorfur á næstu árum. Seðlabankar helstu viðskiptalanda Íslands hafa flestir brugðist við með því að draga mjög úr væntingum um hækkun stýrivaxta á næstu misserum. Efnahagssamdráttur í viðskiptalöndum mun óhjákvæmilega draga úr hagvexti hér á landi og mögulega lengja samdráttarskeiðið enn frekar. Hagfræðideild bankans telur því að með hækkun vaxta við núverandi aðstæður yrði gengið á skjön við þær aðgerðir og stefnu sem unnið er að víðast erlendis og að slík ráðstöfun gæti auðveldlega stefnt þeim veikburða efnahagsbata sem nú er í sjónmáli í hættu."
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira