Google kaupir Motorola 15. ágúst 2011 16:45 Google var fyrir eigandi og framleiðandi Android-stýrikerfisins, en með kaupunum er Google líka einn stærsti framleiðandi snjallsíma sem keyra Android.
Tæknirisinn Google hefur tilkynnt að hann muni kaupa Motorola Mobility, sem er farsímahluti Motorola. Þessum kaupum fylgja allir símar sem Motorola framleiðir, sem og spjaldtölvur. Motorola Solutions, sem sér um fjarskiptalausnir fyrirtækisins, er ekki inni í kaupum Google og mun starfa áfram sjálfstætt. Samkvæmt íslenska tæknivefnum Símoni þykja þetta mikil tíðindi í tækniheiminum þar sem Google mun nú sitja beggja vegna borðsiðns, sem eigandi og framleiðandi Android-stýrikerfisins, og svo nú sem einn stærsti framleiðandi snjallsíma sem keyra Android. Samkvæmt upplýsingum á bloggsíðu sem Google heldur úti mun Motorola starfa sem sér deild innan Google, til að byrja með hið minnsta. Tilkynnt var um kaupin fyrr í dag en Google hefur skuldbundið sig til að kaupa hvern hlut í Motorola á genginu 40 dali. Þetta er um 63 prósentum hærra en gengi á mörkuðum. Heildarvirði kaupanna er um 1500 milljarðar króna. Þetta eru stærstu einstöku kaup Google frá því fyrirtækið var stofnað fyrir fimmtán árum.Sjá nánari umfjöllun um kaupin á tæknivefnum Símoni.
Tækni Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira