ESA samþykkir kaup Íslandsbanka á Byr 19. október 2011 12:02 Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur heimilað fyrir sitt leyti kaup Íslandsbanka á Byr. Tilkynning þess efnis hefur verið birt á vefsíðu ESA. Fallist er á kaupin með skilyrðum um að kaupin raski ekki samkeppni. Þá er einnig samþykkt að Byr njóti áfram lánafyrirgreiðslu frá íslenska ríkinu, líkt og hingað til. Tilkynning ES er eftirfarandi: „Íslandsbanka er heimilt að festa kaup á Byr, þrátt fyrir að hafa áður hlotið ríkisaðstoð. ESA samþykkti lánafyrirgreiðslu til 6 mánaða til handa Byr í apríl síðastliðnum. Markmiðið með þeirri ráðstöfun var að endurfjármagna Byr. Síðar kom í ljós að bankinn þurfti á meira eigin fé að halda til þess að uppfylla lagaskilyrði. Bankinn var því settur í opið söluferli sem lauk með því að Íslandsbanki keypti Byr. Íslandsbanki, líkt og Byr, naut ríkisaðstoðar í kjölfar fjármálakreppunnar. Við venjulegar kringumstæður er bönkum sem notið hafa ríkisaðstoðar ekki heimilt að festa kaup á samkeppnisaðilum sínum. Undantekningu frá þessu banni má veita að uppfylltum tveimur meginskilyrðum: - að kaupin séu nauðsynleg til að tryggja fjármálastöðugleika, og - að þau feli ekki í sér óþarfa röskun á samkeppni. Er það álit ESA að þessum skilyrðum sé fullnægt. Íslandsbanka verður gert að skila áætlun um endurskipulagningu til ESA fyrir hið sameinaða fyrirtæki innan þriggja mánaða frá því að hinn ráðgerði samruni á sér stað. Aætlunin skal innihalda aðgerðir sem miða að því að virk samkeppni ríki á íslenskum bankamarkaði eftir samrunann. Ákvörðunin í heild sinni, án trúnaðarupplýsinga, verður birt á vefsíðu ESA, eftir u.þ.b. einn mánuð."
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira