Landbúnaðarháskólinn keyrði fram úr fjárlögum 29. júlí 2011 18:45 Stofnanir tengdar landbúnaði keyrðu sumar rækilega fram úr fjárheimildum. Landbúnaðarháskólinn keyrði meira en helming fram úr fjárlögum.
Landbúnaðarháskóli Íslands keyrði meira en helming fram úr fjárlögum. Þrátt fyrir að flestar ríkisstofnanir hafi haldið sig innan fjárlaga kostuðu margar þeirra ríkið mun meira en lagt var upp með á síðasta ári. Það er gömul saga og ný að á hverju ári kosta margar ríkisstofnanir meira í rekstri en lagt var upp með í fjárheimildum ársins. Í inngangi að ríkisreikningi ársins 2010 hampar fjármálaráðherra því reyndar að þær hafi verið færri á síðasta ári en áður var. Engu að síður eru nokkrir svartir sauðir í ríkisreikningnum. Stofnanir tengdar landbúnaði keyrðu til dæmis sumar rækilega fram úr fjárheimildum. Landbúnaðarháskólanum voru skammtaðar 372 milljónir króna í fjárheimildum, en hann kostaði hið opinbera 610 milljónir, og keyrði þar með um 65 prósentum fram úr fjárheimildum. Búnaðarsjóður fór þriðjungi fram úr fjárheimildum og Fóðursjóður tíund. Samkvæmt ríkisreikningi kostaði Landspítalinn svo tæpum þremur milljörðum meira í rekstri en fjárheimildir gerðu ráð fyrir. Sinfóníuhljómsveit Íslands kostaði 740 milljónir, en átti að fá 637 milljónir úr ríkissjóði; hljómsveitin fór 16 prósentum fram úr fjárlögum. Þjóðgarðar reyndust einnig dýrari en fjárlög gerðu ráð fyrir; bæði Vatnajökulsþjóðgarður og þjóðgarðurinn á Þingvöllum kostuðu þriðjungi meira en þeim var skammtað. Þá gátu ýmsar menntastofnanir ekki haldið sig innan fjárlaga, en Árnastofnun, Ajölbrautaskóli Vesturlands og Fjölbrautaskóli Snæfellinga fóru öll meira en tíund fram úr fjárlögum. Lögreglu- og sýslumannsembætti stóðu öll nokkurnvegin á pari við áætlun, ef frá er talinn lögreglustjórinn á Suðurnesjum. Hann eyddi um 150 milljónum meira en hann mátti og fór þannig fimmtungi fram úr áætlun.
Mest lesið Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Viðskipti innlent Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Sá elsti í heiðurshópnum níutíu ára Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu um jólin Viðskipti innlent Ætlar að endurreisa Niceair Viðskipti innlent Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Viðskipti innlent Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar Viðskipti innlent Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu Viðskipti innlent Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Kaffi Ó-le opið á ný Hættir sem þjálfari kokkalandsliðsins Veiðigjald á þorski nánast tvöfaldað milli ára Ákvörðun um fjárhæð veiðigjalds seinni á ferðinni en venjulega Sjá meira