Bygma er að ganga frá kaupum á Húsasmiðjunni 19. desember 2011 06:00 Endurálagning Ríkisskattstjóra vegna skuldsettra yfirtakna fyrrum eigenda fyrirtækisins setti stórt strik í reikninginn í söluferlinu. Fréttablaðið/Pjetur
Danska byggingavörukeðjan Bygma A/S mun ganga frá kaupum á Húsasmiðjunni í byrjun þessarar viku. Heimildir Fréttablaðsins herma að náðst hafi samkomulag milli Framtakssjóðs Íslands (FSÍ) og dönsku kaupendanna um þá niðurstöðu. Húsasmiðjan var auglýst til sölu í ágúst síðastliðnum. Alls skiluðu tólf inn óskuldbindandi tilboðum og fimm skuldbindandi tilboðum skömmu síðar. Í byrjun nóvember var síðan ákveðið að ganga til viðræðna við hæstbjóðanda, Bygma A/S. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru viðræður langt komnar þegar tilkynning um endurálagningu skatta upp á meira en hálfan milljarð króna barst frá Ríkisskattstjóra. Ástæða endurálagningarinnar var að fyrri eigendur Húsasmiðjunnar nýttu vaxtagreiðslur af lánum sem notuð voru til að kaupa fyrirtækið til skattafrádráttar. Ríkisskattstjóri telur slíkt ekki heimilt. Húsasmiðjan hefur mótmælt endurálagningunni. Í síðustu viku tókst að ná samkomulagi milli Bygma og FSÍ um hvernig tekist verður á við endurálagninguna verði hún að veruleika. Í kjölfarið var hægt að ganga frá kaupunum. Ástæðu endurálagningarinnar má rekja til þess þegar félag í eigu Árna Haukssonar og Hallbjörns Karlssonar keypti Húsasmiðjuna sumarið 2002 ásamt Baugi Group, fjárfestingafélagi í meirihlutaeigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu. Kaupin fóru fram í gegnum nýstofnað félag sem fékk nafnið Eignarhaldsfélag Húsasmiðjunnar ehf. Árni og Hallbjörn áttu 55% hlut í félaginu en Baugur 45%. Kaupverðið á Húsasmiðjunni var um 5,3 milljarðar króna og var að langmestu leyti tekið að láni. Í byrjun árs 2004 var Eignarhaldsfélag Húsasmiðjunnar síðan sameinað rekstrarfyrirtækinu Húsasmiðjan hf. Í samrunaáætlun kom fram að „við sameininguna renna allar eignir, skuldir og skuldbindingar Eignarhaldsfélags Húsasmiðjunnar ehf. inn í Húsasmiðjuna hf.“. Því voru lánin sem eigendahópurinn tók árið 2002 nú orðin lán Húsasmiðjunnar. Við það hækkuðu skuldir Húsasmiðjunnar um 4,3 milljarða króna. Snemma árs 2005 seldu Árni og Hallbjörn síðan eignarhluta sinn í Húsasmiðjunni til nýstofnaðs félags í eigu Baugs, Saxbygg og Fjárfestingafélagsins Primus, sem var í eigu Hannesar Smárasonar. Það félag fékk sama nafn og félagið, sem áður hafði verið rennt saman við Húsasmiðjuna, Eignarhaldsfélag Húsasmiðjunnar ehf. Síðan var sami leikurinn leikinn aftur. Í mars 2006 var Eignarhaldsfélag Húsasmiðjunnar og dótturfélög þess sameinuð Húsasmiðjunni hf. með öllum eignum og skuldum. Sameiningin miðaði við 1. júní 2005. Við það hækkuðu skuldir Húsasmiðjunnar um 2,8 milljarða króna. Samtals hækkuðu skuldir fyrirtækisins því um 7,1 milljarð króna vegna skuldsettra yfirtakna fyrrum eigenda. Landsbankinn breytti samtals 11,2 milljörðum króna af skuldum Húsasmiðjunnar í nýtt hlutafé áður en bankinn seldi fyrirtækið til Framtakssjóðsins. Skuldir Húsasmiðjunnar í dag eftir þær niðurfærslur eru rúmlega 2,5 milljarðar króna. thordur@frettabladid.is
Mest lesið Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira