Vilja lögfesta aga í ríkisfjármálum Hafsteinn Hauksson skrifar 26. júní 2011 19:00
Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, leggur til að agi í ríkisfjármálum verði lögfestur hér á landi til að hægt verði að greiða niður skuldir ríkissjóðs. Hætta sé á að skuldastaðan fari yfir hættumörk ella. Í nýjustu skýrslu efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD um Ísland er lögð áhersla á að ríkissjóður skili árlegum afgangi eftir 2013 og greiði niður skuldir sínar, eins og raunar er fyrirhugað. Það sé nauðsynlegt svo ríkissjóður hafi borð fyrir báru að bregðast við áföllum, en ef skuldastaðan skáni ekki gæti hún orðið sprengifim þegar högg kemur næst á hagkerfið. „Á fjármálasviðinu leggjum við til að auka aga í ríkisfjármálunum til að styrkja fjárhagsstöðuna og stuðla að því að sú þróun sem varð fyrir nokkru endurtaki sig ekki," segir Patrick Lenain, einn af höfundum skýrslunnar. Þannig er lagt til í skýrslunni að stjórnvöld setji sér skýrar reglur um jafnvægi í ríkisfjármálum, sem kæmu til viðbótar ýmsum stofnanabreytingum sem þegar hefur verið ráðist í til að gæta aðhalds. OECD stingur upp á að slíkar skorður verið lögfestar svo þeim verði örugglega fylgt eftir, líkt og gert hefur verið í Ástralíu og Nýja-Sjálandi, en þar þurfa stjórnmálamenn að ganga á pólitískan höfuðstól sinn ef þeir hyggjast raska jafnvægi í ríkisfjármálunum tímabundið. „Hugmyndin er í raun sú að setja nýjar reglur um skynsamar skorður sem ríkisstjórnin má ekki víkja frá. Hún þarf líka að skýra út fyrir almenningi hvers vegna halli sé á fjárlögum og hvernig hún hyggist ná skynsamlegri stöðu á ný í ríkisfjármálum. Þetta snýst um ábyrgð og gegnsæi og að ekki sé verið að blekkja almenning til að ná pólitískum ávinningi til skamms tíma,." segir David Carey, annar höfundur skýrslunnar.
Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira