VBS lánaði milljarða út á loftkastalasmíði 10. janúar 2011 07:00 Fjölbýlishúsalóð undir Úlfarsfelli er metin á rúmar 530 milljónir króna. Eignamatið er byggt á væntu söluandvirði fasteigna sem rísa áttu á lóðinni.Fréttablaðið/vilhelm
VBS fjárfestingarbanki með fulltingi Landsbankans tók þátt í kaupum á fasteignaverkefnum og lánaði milljarða króna út á mat á hugsanlegu söluandvirði fasteigna sem aldrei risu. Meðal stærstu lántakenda í þessum viðskiptum var fyrirtækið Innova, móðurfélag JB Byggingafélags og Riss, sem Engilbert Runólfsson fór fyrir. Stjórnendur bankans létu ekki brotaferil og vafasama fortíð hans trufla sig. Dæmi um slík lánaviðskipti eru þrjár lóðir fyrir 109 íbúða fjölbýlishús á vegum Innova við Urðarbrunn í landi Úlfarsfells. Reykjavíkurborg úthlutaði lóðinni árið 2007. Í uppgjöri lóðaeiganda sem hafði í hyggju að reisa fjölbýlishúsið er lóðin metin á rúmar 530 milljónir króna og fékk hann lánað hjá VBS í samræmi við það. Engar fasteignir hafa risið á lóðunum og er eina sjáanlega byggingin við þær dreifistöð frá Reykjavíkurborg. Fasteignamat lóðanna við Urðarbrunn er 33,6 milljónir króna í dag. Þetta er fjarri því eina dæmið í tilviki Innova. Félagið skilaði síðast inn ársreikningi fyrir rekstrarárið 2007. Félagið skuldaði 10,8 milljarða króna í lok ársins. Eignir voru metnar á tæpa 11,6 milljarða króna. Eignir upp á tæpa 7,3 milljarða króna eru ýmist óskipulagðar lóðir með engum mannvirkjum eða óvíst hverjar þær eru. Þeir sem rætt hefur verið við segja félagið hafa ofmetið eignir sínar stórkostlega, reksturinn hafa verið skuldsettan upp í rjáfur og með ólíkindum að nokkurt fjármálafyrirtæki hafi stutt við fyrirtækið með þeim hætti sem VBS gerði. Bankinn fékk Innova í fangið í september árið 2008, um mánuði áður en gömlu viðskiptabankarnir þrír fóru á hliðina. Gjaldþrotaskipti standa nú yfir á fyrirtækinu. Eignir félagsins hafa verið seldar til dótturfélaga bankanna, annarra verktaka og lóðum verið skilað til landeigenda. Gróðasjónarmið ráða förBoðaþing í Kópavogi 28 íbúða fjölbýlishús Innova í Kópavogi féll í skaut Landsbankans í kjölfar hruns á verktakamarkaði. Blokkin var metin á tæpar 380 milljónir króna í árslok 2007. Fasteignamat er í dag rétt rúmar 300 milljónir.Fréttablaðið/VilhelmVBS fjárfestingarbanki var einn þeirra banka og fjármálafyrirtækja sem voru fyrirferðarmikil í svokölluðum ástarbréfaviðskiptum stóru viðskiptabankanna við Seðlabankann. Þegar bankarnir féllu í október 2008 skuldaði VBS Seðlabankanum 26,4 milljarða króna. Heildarafskriftir ríkissjóðs vegna ástarbréfaviðskiptanna námu 175 milljörðum króna í ríkisreikningi árið 2008.Í stað þess að knýja VBS í þrot breytti ríkissjóður skuld bankans í lán til sjö ára. Fyrsti gjalddagi lánsins var í byrjun síðasta árs. Bankinn réð ekki við fyrstu afborgun. Fjármálaeftirlitið tók hann yfir í fyrravor og skipaði yfir hann slitastjórn.Eins og Fréttablaðið hefur greint frá var verðmæti eignasafns VBS fært úr 52 milljörðum króna í tíu undir lok síðasta árs og er aðeins einn óveðsettur milljarður til skiptanna á móti 48 milljarða króna kröfum í þrotabúið. Hróbjartur Jónatansson, lögmaður sem sæti á í slitastjórn bankans, sagði þá í samtali við blaðið vísbendingar um að stjórnendur bankans hefðu lánað til fasteignaverkefna með veði í lóðum og húsum án þess að húsin hefðu nokkru sinni risið. Viðskiptavinir borga brúsannniðurGrafnir draumar Verktakafyrirtækið JB Byggingafélag, sem Engilbert Runólfsson átti um tíma, gerði teikningar að tíu þúsund fermetra verslana- og skrifstofuhúsnæði við Skógarlind í Kópavogi og er búið að steypa undirstöður undir bygginguna. Reginn ehf, dótturfélag Landsbankans, á lóðina í dag. Búið er að moka yfir undirstöðurnar og mun hún til sölu fyrir rétt verð. Grunnurinn var metinn á rúman 1,3 milljarða í bókum JB Byggingafélags árið 2007. Fréttablaðið/VilhelmFréttablaðið hefur heimildir fyrir því að skuldabréf tengd lánveitingum VBS til framkvæmda hafi verið seld inn í eignastýringu bankans og viðskiptavinir bankans því í raun tekið alla áhættuna.Fasteignaverkefni á vegum VBS eru flest á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum auk fasteignaverkefnis í landi Laugardæla rétt við fyrirhugað brúarstæði á Selfossi. VBS tók virkan þátt í verkefninu og átti í því tæplega þrjátíu prósenta hlut. Þrotabú VBS á Laugadæli í dag. Þar eru malarvegir, ljósastaurar og einhverjar lagnir í jörð. Ekkert virðist hafa verið átt við lóðirnar. Landið er veðsett fyrir 2,8 milljarða.Útlán VBS til fasteignaverkefna af þessum toga námu 20 milljörðum króna og jafngilti það 76 prósentum af heildarútlánum bankans þegar hann féll. Samkvæmt athugun endurskoðenda á rekstri bankans fyrir hrun er talið víst að hann hafi verið ógjaldfær í ársbyrjun 2008, tveimur árum áður en Fjármálaeftirlitið tók hann yfir.Slitastjórn VBS undirbýr nú að stefna mönnum vegna nokkurra gjörninga fyrrverandi stjórnenda bankans og er ekki útilokað að einhverjir þeirra lendi á borði sérstaks saksóknara.
Skroll-Viðskipti Tengdar fréttir Segir VBS hafa stundað talnaleiki Innova varð á meðal fimm umsvifamestu fyrirtækja í byggingageiranum að undangengnum samruna Stafna á milli við tvö önnur verktakafyrirtæki. Starfsmenn voru rúmlega tvö hundruð og veltan í kringum sjö milljarðar króna. Forstjóri fyrirtækisins var Engilbert Runólfsson. Hann sat inni fyrir aðild að fíkniefnainnflutningi fyrir fimmtán árum en varð stórtækur á fasteignamarkaði eftir aldamótin. 10. janúar 2011 06:30 Fengu milljarða út á hús sem aldrei risu VBS fjárfestingarbanki lánaði fyrirtæki Engilberts Runólfssonar milljarða króna til ýmissa fasteignaverkefna með veði í fasteignum sem aldrei risu. 10. janúar 2011 06:00 Mest lesið Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent Bíllinn þremur milljónum dýrari Viðskipti innlent S4S-veldið tekur við Lindex Viðskipti innlent Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Viðskipti innlent Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Viðskipti innlent Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur Lindex lokað á Íslandi Viðskipti innlent Segir leigusala hækka leigu í takt við skerðingu Neytendur Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Viðskipti innlent Fleiri fréttir S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Fyrirtæki Elds með málmana sem Trump girnist á Grænlandi Sjá meira
Segir VBS hafa stundað talnaleiki Innova varð á meðal fimm umsvifamestu fyrirtækja í byggingageiranum að undangengnum samruna Stafna á milli við tvö önnur verktakafyrirtæki. Starfsmenn voru rúmlega tvö hundruð og veltan í kringum sjö milljarðar króna. Forstjóri fyrirtækisins var Engilbert Runólfsson. Hann sat inni fyrir aðild að fíkniefnainnflutningi fyrir fimmtán árum en varð stórtækur á fasteignamarkaði eftir aldamótin. 10. janúar 2011 06:30
Fengu milljarða út á hús sem aldrei risu VBS fjárfestingarbanki lánaði fyrirtæki Engilberts Runólfssonar milljarða króna til ýmissa fasteignaverkefna með veði í fasteignum sem aldrei risu. 10. janúar 2011 06:00