Eignasala Icelandic Group nemur 41 milljarði 20. desember 2011 09:00 „
Með sölu á starfseminni í Bandaríkjunum og sölu eigna í Þýskalandi og Frakklandi hefur Icelandic Group nú selt eignir fyrir samtals um 41 milljarð króna, þar af hefur um 21 milljarður verið greiddur með yfirtöku skulda sem hvíldu á þessari starfsemi." Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið hefur sent frá sér vegna þess að endanlega er búið að ganga frá sölunni á eignum þess í Bandaríkjunum og Asíu eins og greint var frá á vísir.is í morgun. Í tilkynningunni segir að Icelandic Group hafi lokið sölu á starfsemi sinni í Bandaríkjunum og tengdri innkaupa- og framleiðslustarfsemi í Asíu. Kaupandi er kanadíska sjávarútvegsfyrirtækið High Liner Foods. Endanlegt heildarsöluverð nam 232,7 milljónum dollara sem jafngildir 28,4 milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Til viðbótar kom einnig endurmat vegna veltufjármuna að upphæð 15,2 milljónum dollara, eða sem nemur um 1.8 milljörðum íslenskra króna sem seljandi fær í sinn hlut. Með sölunni er fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins lokið. Í tengslum við söluna hefur Landsbankinn selt 19% hlut sinn í Icelandic og á Framtakssjóður Íslands nú félagið að fullu. Í samkomulagi um kaup Framtakssjóðsins á 81% hlut í Icelandic á árinu 2010 var ákvæði þess efnis að ef áætlanir um sölu eigna gengju eftir myndi Framtakssjóðurinn kaupa eftirstandandi hlut Landsbankans í félaginu. Félagið sjálft á nú 10% af eigin hlutafé. „Það var mikilvægur áfangi að ljúka sölu eigna Icelandic í Bandaríkjunum en ekki síður að ljúka sölu á eignum félagsins í Frakklandi og Þýskalandi fyrr á árinu. Í kjölfar þeirrar endurskipulagningar sem nú er að ljúka er félagið fjárhagslega sterkt og á alla möguleika til að vaxa og dafna," segir Herdís Fjeldsted, stjórnarformaður Icelandic Group í tilkynningunni.Áfram með 1.200 manns í vinnu„Eftir þessi viðskipti er Icelandic Group með starfsemi á Íslandi, í Evrópu og Asíu og verður með um 80 milljarða króna í veltu og 1.200 starfsmenn. Verkefnið framundan er að straumlínulaga reksturinn enn frekar og efla starfsemi félagsins. Þjónusta við íslenska framleiðendur er afar mikilvæg fyrir okkar starfsemi og við munum vinna náið með þeim að því að efla enn frekar markaðssókn íslenskra sjávarafurða á erlenda markaði," segir Lárus Ásgeirsson, forstjóri Icelandic Group.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira