Segir Microsoft vera að kaupa Nokia 2. júní 2011 08:58
Sérfræðingur í málefnum tæknifyrirtækja heldur því fram að Microsoft sé að kaupa farsímaframleiðslu Nokia fyrir tæplega 2.200 milljarða kr. Þetta kemur fram á vefsíðunni bgr.com en flestir fjölmiðlar Danmerkur birta fréttir um þetta í dag. Sé sem hér um ræðir heitir Eldar Murtazin og hann hefur áður verið fyrstur með fréttir af Nokia. Hann var meðal þeirra fyrstu sem sögðu frá því þegar Microsoft og Nokia sömdu um að nota hugbúnað frá Microsoft í snjallsíma Nokia. Murtazin hélt því fram fyrir nokkru síðan að Microsoft og Nokia myndu hefja lokaðar viðræður um kaupin og að þeim yrði lokið fyrir áramót. Ýmislegt bendir til að Murtazin hafi rétt fyrir sér, að því er segir í umfjöllun Jyllands Posten um málið. Stephen Elop forstjóri Nokia er fyrrum stjórnandi hjá Microsoft og fyrirtækin vinna þegar saman að smíði nýs snjallsíma sem væntanlega kemur á markað fyrir áramót. Elop vísar þessari frétt alfarið á bug og segir ekkert hæft í því sem Murtazin segir. Talsmaður Nokia hefur einnig látið hafa það eftir sér að orðrómurinn frá Murtazin verði ónákvæmari með hverri mínútu.
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira