Verðbólguálagið hefur tvöfaldast frá áramótum 24. maí 2011 12:03
Verðbólguálag á skuldabréfamarkaði er nú nærri tvöfalt hærra en það var í upphafi árs. Álagið er nú 4,3% til 5 ára, en um áramótin var það 2,1%. Það má því segja að skuldabréfamarkaður endurspegli litla trú markaðsaðila á því að fyrirheit stjórnvalda í kjarasamningum um verulega styrkingu krónu og verðbólgu við markmið Seðlabankans næstu misserin gangi eftir. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að hækkun álagsins er að mestu tilkomin vegna hækkunar á kröfu óverðtryggðra ríkisbréfa, en einnig hefur krafa íbúðabréfa lækkað nokkuð á tímabilinu.„Verðbólguálag á markaði hefur sveiflast verulega undanfarin misseri. Mat okkar er að álagið ýki nokkuð þær breytingar sem hafa orðið á verðbólguhorfum frá einum tíma til annars, en einnig ber að hafa í huga að aðstæður á markaði geta einnig haft tímabundin áhrif á álagið, jafnvel af ástæðum sem ekki tengjast verðbólguvæntingum á neinn hátt. Þar er nærtækt að benda á þróunina á kröfu stystu ríkisbréfaflokkanna annars vegar, og íbúðabréfaflokksins HFF14 hins vegar, en þróun þessara flokka ræður miklu um reiknað verðbólguálag til 3-4 ára,“ segir í Morgunkorninu. „Krafa stuttu ríkisbréfanna hefur verið undir stýrivöxtum Seðlabankans um nokkurt skeið, enda eru bréfin vinsæl hjá erlendum krónueigendum. Þrýsti þetta að mati okkar verðbólguálaginu til skemmri tíma niður fyrir almennar verðbólguvæntingar framan af vetri. Upp úr áramótum brá hins vegar svo við að áhugi erlendra fjárfesta á HFF14-bréfunum jókst verulega, enda eru þau þeirrar náttúru að útlendingar sem þau kaupa fá leyfi til að kaupa gjaldeyri fyrir afborganir af höfuðstól þeirra og geta þannig fengið fjárfestingu sína endurgreidda í gjaldeyri jafnt og þétt á næstu þremur árum. Þetta hefur orðið til þess að þrýsta kröfu niður fyrir 0% á stundum og hækka verðbólguálagið til skemmri tíma að sama skapi.“ Þá segir að hvað sem þessu líður er ljóst að fjárfestar hafa ástæðu til þess að vænta meiri verðbólgu næstu misserin en horfur voru á um síðustu áramót. Veiking krónu, niðurstaða kjarasamninga, þróun orku- og hrávöruverðs og einskiptisliðir á borð við mikla gjaldskrárhækkun OR og leiðréttingu Hagstofu á hluta húsnæðisliðar VNV hefur allt lagst á eitt um að breyta verðbólguhorfum. Nú er útlit fyrir að verðbólga verði talsvert yfir 2,5% markmiði Seðlabankans í lok árs, og að svipað verði upp á teningnum fram eftir næsta ári. Það má því segja að skuldabréfamarkaður endurspegli litla trú markaðsaðila á því að fyrirheit stjórnvalda í kjarasamningum um verulega styrkingu krónu og verðbólgu við markmið Seðlabankans næstu misserin gangi eftir.
Mest lesið Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira