Viðskipti innlent

Ágúst Einars hættur í stjórn Framtakssjóðsins

Ágúst Einarsson kveður Framtakssjóðinn með stolti
Ágúst Einarsson kveður Framtakssjóðinn með stolti Mynd GVA
Dr. Ágúst Einarsson hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarformennsku í Framtakssjóði Íslands næsta starfsár en aðalfundur sjóðsins verður haldinn á fimmtudag þar sem ný stjórn verður kjörin.

Ágúst hefur verið formaður sjóðsins frá upphafi en sjóðurinn er í eigu lífeyrissjóða auk Landsbanka Íslands og VÍS.

Á árinu 2010, sem var fyrsta heila starfsár sjóðsins skilaði Framtakssjóður Íslands 700 milljóna króna hagnaði og voru heildareignir í árslok 5,6 milljarðar króna.

Ágúst Einarsson segir: „Það hefur verið ákaflega gefandi að vinna að uppbyggingu Framtakssjóðs Íslands með starfsfólki og samstarfsfólki í stjórn. Nú eru ákveðin kaflaskil í starfsemi sjóðsins; uppbygging eignasafns er vel á veg komin og sjóðurinn búinn að festa sig í sessi sem virkur fjárfestir í íslensku atvinnulífi. Afkoma sjóðsins á fyrsta starfsári ári var góð; ávöxtun eigin fjár var 49% og ráðinn hefur verið góður og samhentur hópur starfsmanna til sjóðsins. Það er því með nokkru stolti sem ég kveð Framtakssjóð Íslands að loknum þessum uppbyggingarfasa."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×