Landsbankinn spáir óbreyttum stýrivöxtum 10. júní 2011 16:38
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum en næsti vaxtaákvörðunardagur er á miðvikudaginn kemur. „Í ljósi yfirlýsingar Peningastefnunefndar Seðlabankans hinn 30. mars er líklegt að hugleiðingar nefndarinnar að þessu sinni snúist um það hvort halda skuli stýrivöxtum óbreyttum eða hækka þá. Meirihluti nefndarmanna virðist sannfærður um að virkt samband sé á milli stýrivaxta og gengis krónunnar, þrátt fyrir gjaldeyrishöft,“ segir í tilkynningu frá bankanum. Bankinn bendir á að gengi krónunnar hafi veikst nokkuð frá síðustu vaxtaákvörðun og verðbólga hafi hækkað. „Eftirspurn eftir lánsfé er hinsvegar í lágmarki, atvinnuleysi er mikið og lítill þróttur er í efnahagslífinu um þessar mundir. Að mati Hagfræðideildar Landsbankans myndi vaxtahækkun við núverandi aðstæður hvorki hafa áhrif á þróun gengisins til skamms tíma né slá á hækkun verðbólguvæntinga síðustu mánuði.“ „Áhrifaríkustu verkfæri Seðlabankans til að halda verðbólgunni í skefjum snúa beint að gengi krónunnar og aukinni virkni fjármálamarkaða,“ segir ennfremur. „Þar leikur áætlunin um afnám gjaldeyrishafta lykilhlutverk og brýnt er að þau skref sem snúa að fjárfestingu aflandskróna í atvinnulífinu verði stigin sem fyrst.“ Að lokum segir að Seðlabankar Evrusvæðisins, Bandaríkjanna og Bretlands hafi nýverið ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum þrátt fyrir mun skjótari efnahagsbata á þessum svæðum en svipaða verðbólguþróun og hér á landi. „Miðað við mikinn slaka í íslensku hagkerfi og veikburða efnahagsbata er fátt sem mælir með hækkun stýrivaxta. Í ljósi þessa gerir Hagfræðideild Landsbankans ráð fyrir því að meirihluti Peningastefnunefndarinnar ákveði að halda stýrivöxtum óbreyttum.“
Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira