Tap OR rúmir fimm milljarðar 28. nóvember 2011 14:23
Orkuveita Reykjavíkur tapaði 5,3 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs samanborið við hagnað upp á tæpa 17 milljarða á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í árshlutareikningi Orkuveitunnar sem lagður var fram í dag. Í tilkynningu frá félaginu segir þó að afkoma af reglulegri starfsemi fyrirtækisins hafi verið betri í ár en í fyrra. Það megi rekja til aukinna tekna og aðhalds í rekstri. Þá segir að óhagstæð gengisþróun og lækkun álverðs á fyrstu níu mánuðum ársins hafi haft verulega neikvæð áhrif á fjármagnsliði. „Afkomuáhrif fjármagnsliðanna sveiflast um 35,6 milljarða króna milli ára. Því var rekstrartap á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2011 5.344 milljónir króna samanborið við 16.794 milljóna hagnað á sama tímabili 2010, þegar gengisþróun var hagfelldari en í ár," segir ennfremur. Bjarni Bjarnason forstjóri OR segir ánægjulegt hversu vel hafi gengið að ná tökum á rekstrinum og skera niður kostnað. „Það er lykilatriði í því að Orkuveitan standi við þá aðgerðaáætlun sem gerð var í samstarfi við eigendur í vor. Þróun ytri þátta á borð við álverð og gengi sýnir okkur hinsvegar að fyrirtækið er enn of viðkvæmt fyrir sveiflum af því tagi." Helstu tölur úr rekstrinum er að finna hér að neðan:Rekstur. Tap varð af rekstri OR á tímabilinu sem nam 5.344 milljónum króna samanborið við 16.794 milljón króna hagnað á sama tímabili árið 2010.Rekstrartekjur tímabilsins námu 24.388 milljónum króna en voru 19.444 milljónir króna á sama tímabili árið áður.Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, var 15.478 milljónir króna en 9.886 milljónir króna sama tímabil árið áður.Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 17.157 milljónir króna á tímabilinu, en voru jákvæðir um 18.395 milljónir króna sama tímabil árið áður.Heildareignir þann 30. september 2011 voru 291.735 milljónir króna en voru 286.540 milljónir króna 31. desember 2010.Heildarskuldir fyrirtækisins þann 30. september 2011 voru 237.093 milljónir króna en voru 233.694 milljónir króna í árslok 2010.Eigið fé þann 30. september 2011 var 54.642 milljónir króna en var 52.847 milljónir króna 31. desember 2010.Eiginfjárhlutfall var 18,7% þann 30. september 2011 en var 18,4% í árslok 2010.
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira