Viðskipti innlent

Byggingakostnaður stendur nánast í stað

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Vísitala byggingarkostnaðar, sem reiknuð var um miðjan ágúst 2011, er 110,5 stig. Það er lækkun um 0,2% frá fyrri mánuði. Verð á innfluttu efni lækkaði um 0,4% og verð á innlendu efni lækkaði um 0,3%. Vísitalan gildir í september 2011, eftir því sem fram kemur á vef Hagstofunnar. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 7,8%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×