Viðskipti innlent

Dregur úr veltunni á fasteignamarkaði borgarinnar

Aðeins hefur dregið úr veltu á fasteignamarkaði borgarinnar.  Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 84. Hinsvegar hefur 92 samningum verið þinglýst á viku að meðaltali síðustu 12 vikur.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að af þessum 84 samningum voru 69 samningar um eignir í fjölbýli, 13 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.048 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,4 milljónir króna.  Til samanburðar hefur heildarveltan verið tæpir 2,6 milljarðar á viku undanfarnar 12 vikur og meðalverð hefur numið rúmum 28 milljónum kr.

Í síðustu viku  var 2 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 17 milljónir króna og meðalupphæð á samning 8,3 milljónir króna.

Á sama tíma var 10 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli og 5 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 191 milljón króna og meðalupphæð á samning 19,1 milljón króna.

Á sama tíma var 4 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þeir voru um sérbýli. Heildarveltan var 73 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,3 milljónir króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×