AGS metur hvort rétt sé að hækka vaskinn 28. mars 2011 06:45 Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fjármálaráðherra, hafa tekið margar rimmur um skattamálin í þinginu síðustu misseri.
Fjögurra manna sérfræðinganefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um skattamál er stödd hér á landi til að ræða við stjórnvöld og hagsmunaaðila um skattkerfið og mögulegar breytingar á því. Í kjölfarið mun nefndin skila skýrslu um efnið. Vinnan er liður í samstarfi stjórnvalda og AGS og fór hliðstætt starf fram á síðasta ári. Meðal þess sem nefndin skoðar sérstaklega er hvort ráðlegt sé að hækka sjö prósenta virðisaukaskattsþrepið upp í 25,5 prósent. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins kom sú skoðun sérfræðinganna fram á fundi í vikunni að þeir telja hækkun neysluskatta vel athugandi. Þar er einkum átt við hækkun sjö prósenta þrepsins og hækkun skatta á eldsneyti. Telja þeir svigrúm til að hækka skatta á eldsneyti í því ljósi að þeir eru enn lægri hér á landi en víða í Evrópu. Undir sjö prósenta virðisaukaskattsþrepið heyra nú til dæmis helstu matvæli, bækur, geisladiskar, heitt vatn og rafmagn. Þá hyggst nefndin leggja mat á skattlagningu, verðlagningu og úthlutun afnota af náttúruauðlindum og yfirfara ýmsa umhverfisskatta. Ráðleggingar um endurbætur á núverandi kerfi verða bornar fram í sumarskýrslunni. Jafnframt verður lagt mat á þær breytingar sem stjórnvöld hafa gert á skattkerfinu, til dæmis þrepaskiptingu þess og hækkun fjármagnstekjuskatts. Vörugjöld verða líka yfirfarin og skipting skatttekna milli ríkis og sveitarfélaga. Eins og áður sagði er nefndin hér að ósk stjórnvalda, í samræmi við efnahagsáætlun og samstarf þeirra við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Nefndin er skipuð þremur starfsmönnum sjóðsins og einum starfsmanni alþjóðlegrar stofnunar um skattamál í Hollandi. Hún mun dvelja hér til mánaðamóta og viða að sér upplýsingum og eiga viðræður við stjórnvöld og stjórnmálamenn, embættismenn, samtök atvinnurekenda og launþega og aðra þá sem láta sig skattamál varða. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Sjá meira