Sérstakur saksóknari með milljón tölvupósta í Kaupþingsrannsókn 15. maí 2011 19:31 Ólafur Þ. Hauksson er sérstakur saksóknari. Mynd/ Stefán.
Ef rannsóknir Sérstaks saksóknara dragast fram úr hófi, kann það að leiða til refsilækkunar eða frestunar á fullnustu refsingar, komi til ákæru og sakfellingar. Embættið fékk milljón tölvupósta sem nýtast munu við Kaupþingsrannsókn en engar grunsemdir eru um að gögnum hafi verið fargað þótt embættið hafi fengið þau seint og um síðir. Enn sem komið er hefur embætti sérstaks saksóknara aðeins gefið út ákærur í tveimur málum sem það hefur haft til rannsóknar. Innherjasvikum sem Baldur Guðlaugsson var sakfelldur fyrir í héraðsdómi og í svokölluðu Exeter-máli, þar sem fyrrverandi stjórendur Byrs sparisjóðs og MP banka voru ákærðir fyrir umboðssvik. Nú er um ár liðið frá því að fyrrverandi stjórnendur Kaupþings voru hnepptir í gæsluvarðhald vegna aðildar sinnar að meintri markaðsmisnotkunar Kaupþings en hin meintu brot eru rækilega rakin í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Það sem hefur tafið rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum Kaupþings er aðallega bið eftir gögnum, en fyrst í febrúar síðastliðnum fékk embættið gögn sem voru haldlögð í húsleit í Banque Havilland-bankanum í Lúxemborg. Eitt alvarlegasta brotið sem stjórnendur Kaupþings eru grunaðir um tengist láni til félagsins Lindsor Lindsor Holdings Corporation hinn 6. október 2008, sama dag og neyðarlög voru sett á Íslandi og Kaupþing fékk 500 milljóna evra neyðarlán frá Seðlabanka Íslands. Stjórnendur Kaupþings eru grunaðir um umboðssvik vegna lánveitinga til félagsins en lánin voru notuð til þess að kaupa skuldabréf af Kaupþingi í Lúxemborg, einstökum starfsmönnum bankans og félagi í eigu Skúla Þorvaldssonar. Þar sem svo langur tími leið frá hruni og hinum meintu brotum má velta því fyrir sér hvort gögnum hafi hreinlega ekki verið fargað. Rúmlega ein milljón tölvupósta var haldlögð í húsleitinni í Lúxemborg og samkvæmt upplýsingum fréttastofu hafa rannsakendur sérstaks saksóknara engar vísbendingar fengið um förgun tölvupósta. Lagðar eru þær skyldur á rannsakendur í lögum um meðferð sakamála að hraða rannsóknum eins og kostur er. Ef ákæruvaldið getur ekki sýnt fram á málefnalega drætti á rannsóknum sakamáls kann það að leiða frestunar á fullnustu refsingar eða refsilækkunar þegar og ef til sakfellingar kæmi. Fulltrúar sérstaks saksóknara fullyrða að þær tafir sem orðið hafi á rannsóknum embættisins á málefnum Kaupþings banka megi rekja til dráttar á afhendingu gagna sem höfðu lykilþýðingu fyrir rannsóknina.
Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Sjá meira