Jón Ásgeir segir að það hafi reynst „þvæla að keyra Baug í þrot“ 28. janúar 2011 10:04 Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi aðaleigandi og stjórnarformaður Baugs Group.
Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi stjórnarformaður og aðaleigandi Baugs Group, segir að góður árangur fyrirtækja sem áður voru í eigu Baugs bæði hér á landi og erlendis sýni að staða fyrirtækisins hafi verið mun betri en haldið hafi verið fram í fjölmiðlum hér á landi. Greint hefur verið frá því, síðast í breskum fjölmiðlum í morgun, að skilanefnd Landsbankans stefni að því að selja 67 prósenta hlut sinn í Iceland Foods verslanakeðjunni á verði sem þýðir að fyrirtækið í heild sinni er 1,5 milljarða punda virði, jafnvirði 276 milljarða króna. Fréttastofa hefur áður greint frá því að tilboði frá Malcolm Walker, forstjóra Iceland Foods, sem miðaði að því að fyrirtækið væri eins milljarðs punda virði, var hafnað af skilanefndinni. Segir að Baugur hefði getað greitt upp skuldir í upphafi næsta árs Jón Ásgeir segir í samtali við fréttastofu að Iceland Foods, sem áður var í eigu Baugs Group, sé aðeins eitt af mörgum fyrirtækjum sem áður voru í eigu Baugs sem gangi vel um þessar mundir. Á meðal verslana í eigu Baugs í Bretlandi voru auk Iceland m.a House of Fraser og Hamleys. „Það er ljóst að verslanakeðjur sem áður voru í eigu Baugs eru að skila góðum árangri í Bretlandi, Íslandi, Færeyjum og Danmörku. Sem er nú í andstöðu við það sem fjölmiðlar hafa verið að halda fram hér á landi um allt sem var keypt erlendis hafi verið bull og vitleysa. Það er einnig ljóst í dag að það var þvæla að keyra Baug í þrot. Hefði endurskipulagningarferli það sem við lögðum á borð banka náð fram að ganga hefði Baugur getað greitt upp allar skuldir í upphafi næsta árs, þremur árum á undan þeirri áætlun sem lögð var fram á sínum tíma undir vinnuheitinu Project Sunrise," segir Jón Ásgeir. Hann bendir einnig á að allir þeir forstjórar sem Baugur réð til starfa í verslunarfyrirtækjum starfa enn sem forstjórar í þesum fyrirtækjum í dag. Baugur Group er í gjaldþrotameðferð í dag. Heildarkröfur í þrotabú Baugs námu samtals 319 milljörðum króna. Rúmlega þriðjungur þeirrar upphæðar voru veðtryggðar kröfur og hafa stórir kröfuhafar eins og Landsbankinn nú þegar gengið að veðum sínum, t.d í Iceland Foods. Erlendur Gíslason, annar tveggja skiptastjóra þrotabúsins, hefur sagt að ekki sé algengt þegar um gjaldþrota fyrirtæki sé að ræða að endurheimtuhlutfall almennra krafna fari yfir 10 prósent. Hann hefur hins vegar sagt að ekki sé tímabært að ræða endurheimtur fyrr en niðurstöður úr dómsmálum sem þrotabúið hefur höfðað liggi fyrir, en þrotabúið hefur höfðað fimm riftunarmál þar sem samtals fjárhæð krafna hleypur á tugum milljarða króna.
Tengdar fréttir Telegraph: Iceland til sölu á 274 milljarða Breska blaðið Daily Telegraph segir í frétt í dag að breska verslunarkeðjan Iceland verði seld á næstu tíu mánuðum og reiknað sé með að söluverðið nemi allt að 1,5 milljarði punda eða 274 milljörðum kr. 28. janúar 2011 06:34 Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Fleiri fréttir Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar Sjá meira
Telegraph: Iceland til sölu á 274 milljarða Breska blaðið Daily Telegraph segir í frétt í dag að breska verslunarkeðjan Iceland verði seld á næstu tíu mánuðum og reiknað sé með að söluverðið nemi allt að 1,5 milljarði punda eða 274 milljörðum kr. 28. janúar 2011 06:34