Áfram mikið tap af rekstri Félagsbústaða 22. mars 2011 07:35
Tap af rekstri Félagsbústaða nam 1.871 milljón kr. í fyrra miðað við 3.154 milljóna kr. tap árið á undan. Eigið fé Félagsbústaða í árslok 2010 nam 5,7 milljörðum kr. og hefur lækkað um 1,8 milljarða kr. milli ára. Eiginfjárhlutfall var 18% í árslok 2010 miðað við 23% árið 2009. Þetta kemur fram í tilkynningu en Félagsbústaðir, sem eru hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, eiga og reka félagslegt leiguhúsnæði sem úthlutað er af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Markmið félagsins er að starfa í þágu almannaheilla og skal rekstur þess vera sjálfbær. Rekstrartekjur Félagsbústaða h.f. á árinu 2010 námu 2.399 milljónum kr., sem er 6% aukning tekna frá árinu á undan. Aukningin stafar annars vegar af verðlagshækkun leigu og hins vegar betri nýtingu íbúða í leigu á árinu 2010. Á árinu 2010 voru keyptar 11 íbúðir og seldar jafnmargar. Fjöldi íbúða var því óbreyttur frá fyrra ári eða 2154 íbúðir sem skiptast í 1844 almennar leiguíbúðir, aðallega stakar íbúðir í fjölbýlishúsum víðsvegar um borgina og 310 þjónustuíbúðir aldraða ásamt tilheyrandi þjónusturýnum í 5 þjónustuíbúðakjörnum. Íbúðaeign félagsins í árslok 2010 nam sem svarar 18 íbúðum á hverja 1000 íbúa í Reykjavík, eða 4,6% af öllu íbúðarhúsnæði í borginni. Í tilkynningunni segir að aðstæður á leigumarkaði undanfarin tvö ár, með stórauknu framboði leiguíbúða einkum á fyrsta ársfjórðungi 2009, hafa orðið til þess að leiguverð á almennum leigumarkaði hefur lækkað verulega frá því sem áður var. Að öllum líkindum mun almennt leiguverð fara aftur hækkandi ef spár um aukin umsvif á íbúðamarkaði ganga eftir. Ekki er ósennilegt að slík þróun leiði til aukinnar eftirspurnar eftir félagslegu leiguhúsnæði nema áform um eflingu leigumarkaðarins gangi eftir með stofnun leigufélaga á faglegum grunni m.a. með þátttöku fjársterkra aðila í samfélagslegum tilgangi.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira