Ekki útilokað að kaupmáttur launa rýrni áfram 22. mars 2011 11:46
Greining Íslandsbanka telur að ekki sé útilokað að kaupmáttur launa muni rýrna áfram á næstunni. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar þar sem fjallað er um launamælingar Hagstofunnar sem birtar voru í morgun. Kaupmáttur launa rýrnaði um 1,0% milli janúar og febrúar sem kemur til vegna 1,2% hækkunar á vísitölu neysluverðs á tímabilinu á sama tíma og launavísitalan hækkaði um einungis 0,2%. Þetta er í fyrsta sinn síðan í júní í fyrra sem kaupmáttur launa dregst saman á milli mánaða. „Ekki er loku fyrir það skotið að kaupmáttur komi til með að rýrna enn frekar næsta kastið milli mánaða, þá ef þróun verðbólgunnar verður á svipuðu róli og við spáum og þróun launa verður svipuð og hún hefur verið að undanförnu,“ segir í Morgunkorninu. „Þessi framvinda er þó háð því hvenær kjarasamningar nást og samningsbundnar launahækkanir koma til framkvæmda. Á síðustu tólf mánuðum hefur kaupmáttur launa aukist um 2,2% og dregur nokkuð úr tólf mánaða taktinum frá fyrri mánuði en hann var 2,5% í janúar.“ Þá segir að...“ þrátt fyrir að staðan nú sé svo að margir hópar launþega eru með lausa kjarasamninga teljum við að það sé ekki margt í efnahagsumhverfinu sem bendi til þess að launaþrýstingur hér á landi verði mikill á vinnumarkaði næsta kastið. Endurspeglar það hvort tveggja ástandið hjá hinu opinbera sem hefur staðið í gríðarlegum aðhaldsaðgerðum sem og hjá einkageiranum, en rekstrarumhverfið hjá mörgum fyrirtækjum er enn afar erfitt sem m.a. má sjá með því að rýna í tölur um fjölda gjaldþrota fyrirtækja. Þessi framvinda gerir augljóslega samningsstöðu launþega veikari en ella.“
Mest lesið Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Sjá meira