Seðlabankinn kaupir erlendan gjaldeyri Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. nóvember 2011 17:00
Seðlabanki Íslands mun á komandi mánuðum standa fyrir gjaldeyrisútboðum þar sem bankinn mun kaupa erlendan gjaldeyri í skiptum fyrir krónur til innlendrar fjárfestingar, enda sé fjárfestingin bundin til langs tíma hér á landi. Á vefsíðu Seðlabankans segir að viðskiptin séu liður í losun hafta á fjármagnshreyfingar með gjaldeyri, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Markmið Seðlabanka Íslands með viðskiptunum er að auðvelda losun gjaldeyrishafta, án þess að það valdi verulegum óstöðugleika í gengis- og peningamálum eða tefli fjármálastöðugleika í tvísýnu. „Fjárfestingarleiðin felur í sér að fjárfestar sem hyggist fjárfesta á Íslandi fyrir erlendan gjaldeyri geta keypt íslenskar krónur fyrir hluta gjaldeyrisins í gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands. Skilyrt er að viðkomandi fjárfestir kaupi að minnsta kosti sömu fjárhæð króna í venjulegum viðskiptum við fjármálastofnanir. Einnig er það skilyrði að öllum fjármunum verði varið til fjárfestingar innanlands, samkvæmt nánari ákvæðum í auglýsingum um fjárfestingarleiðina,“ segir á vef Seðlabankans. Þá segir að fjárfestum sem þegar eigi svonefndar aflandskrónur sem verið hafa í samfelldu eignarhaldi viðkomandi fjárfestis frá 28. nóvember 2008 verði gert kleift að fjárfesta með sama hætti og auglýsingin greinir. Þeir munu með sama hætti selja erlendan gjaldeyri hjá innlendri fjármálastofnun og er þá gert kleift að flytja til landsins aflandskrónur sínar.
Mest lesið Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Sjá meira