Flóttamenn Einar Gunnar Birgisson skrifar 18. nóvember 2011 10:00 Nýleg grein formanns innflytjendaráðs og flóttamannanefndar um flóttamenn er furðuleg smíð og skín þar í gegn barnaleg einfeldni og dómgreindarskortur. Hún segir að hér á Íslandi sé nægjanlegt landrými, vatn og fæða til að flytja inn flóttamenn í stórum stíl og er þá væntanlega að tala um tugþúsundir flóttamanna eða kannski hundruð þúsunda. Þá þarf að byggja nýja bæi og úthverfi og byrja strax. Nú, og hefja stórfellda skattheimtu til að borga brúsann. Það er nú svo með þessa flóttamenn að þeir eru eins og hafið. Að flytja inn flóttamenn í stórum stíl og ætla sér að bjarga einhverju vandamáli þar með er eins og að ætla sér að ausa burt sjónum með teskeið. Það er sama hve ausið er, það bætast sífellt fleiri flóttamenn við, bæði alvöru flóttamenn og allir þeir sem vilja flýja fátækt og félagslegt óréttlæti. Þeir eru taldir í hundruðum milljóna og líklega miklu meir. Ég legg til að haldið verði þjóðaratkvæði til að athuga hvort draumsýn áðurnefnds formanns á sér hylli meðal þjóðarinnar. Vandamálin aukast hjá okkur við stórfelldan innflutning flóttafólks en minnka ekkert í löndum fátæktar, stríðs og volæðis. Það er til fólk og samtök sem berjast fyrir því að flutningur fólks til Íslands og annarra Evrópulanda sé algjörlega frjáls. Sumt af þessu fólki virðist líta svo á að þjóðfélög eins og okkar séu gerspillt auðvaldsþjóðfélög og best sé að brjóta þau niður með stórfelldum innflutningi flóttamanna. Ég legg til að áðurnefndur formaður og aðrir hjálparandar starfi í viðkomandi löndum og flóttamannabúðum og hjálpi fólki á staðnum í stað þess að reyna sitt ítrasta til að íþyngja íslenskum skattborgurum og þjóðfélagi með stórfelldum innflutningi flóttamanna. Kostnaður þjóðfélagsins við að hjálpa einum flóttamanni er mikill. Þessum peningum er betur varið við að hjálpa konum, börnum og öðrum sem minna mega sín í viðkomandi landi. Fyrir sama pening er kannski hægt að hjálpa hundruðum manna heima hjá sér. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Skoðun Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Nýleg grein formanns innflytjendaráðs og flóttamannanefndar um flóttamenn er furðuleg smíð og skín þar í gegn barnaleg einfeldni og dómgreindarskortur. Hún segir að hér á Íslandi sé nægjanlegt landrými, vatn og fæða til að flytja inn flóttamenn í stórum stíl og er þá væntanlega að tala um tugþúsundir flóttamanna eða kannski hundruð þúsunda. Þá þarf að byggja nýja bæi og úthverfi og byrja strax. Nú, og hefja stórfellda skattheimtu til að borga brúsann. Það er nú svo með þessa flóttamenn að þeir eru eins og hafið. Að flytja inn flóttamenn í stórum stíl og ætla sér að bjarga einhverju vandamáli þar með er eins og að ætla sér að ausa burt sjónum með teskeið. Það er sama hve ausið er, það bætast sífellt fleiri flóttamenn við, bæði alvöru flóttamenn og allir þeir sem vilja flýja fátækt og félagslegt óréttlæti. Þeir eru taldir í hundruðum milljóna og líklega miklu meir. Ég legg til að haldið verði þjóðaratkvæði til að athuga hvort draumsýn áðurnefnds formanns á sér hylli meðal þjóðarinnar. Vandamálin aukast hjá okkur við stórfelldan innflutning flóttafólks en minnka ekkert í löndum fátæktar, stríðs og volæðis. Það er til fólk og samtök sem berjast fyrir því að flutningur fólks til Íslands og annarra Evrópulanda sé algjörlega frjáls. Sumt af þessu fólki virðist líta svo á að þjóðfélög eins og okkar séu gerspillt auðvaldsþjóðfélög og best sé að brjóta þau niður með stórfelldum innflutningi flóttamanna. Ég legg til að áðurnefndur formaður og aðrir hjálparandar starfi í viðkomandi löndum og flóttamannabúðum og hjálpi fólki á staðnum í stað þess að reyna sitt ítrasta til að íþyngja íslenskum skattborgurum og þjóðfélagi með stórfelldum innflutningi flóttamanna. Kostnaður þjóðfélagsins við að hjálpa einum flóttamanni er mikill. Þessum peningum er betur varið við að hjálpa konum, börnum og öðrum sem minna mega sín í viðkomandi landi. Fyrir sama pening er kannski hægt að hjálpa hundruðum manna heima hjá sér.
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun