Viðskipti innlent

Beiðni Iceland Express um lögbann var hafnað

Matthías Imsland, fyrrverandi forstjóri Iceland Express.
Matthías Imsland, fyrrverandi forstjóri Iceland Express.
Sýslumaðurinn í Reykjavík hafnaði í dag beiðni Iceland Express um lögbann vegna Matthíasar Imsland fyrrverandi forstjóra félagsins. Félagið vildi lögbann á að Matthías starfi með nýju félagi í flugrekstri í samkeppni við Iceland Express næstu 30 mánuði en hann er á meðal þeirra sem standa að flugfélaginu WOW. „Matthías er enn á launum á uppsagnarfresti frá Iceland Express, var síðast greitt laun upp á aðra milljón króna um þessi mánaðamót, er með síma, fartölvu og heimatölvu frá fyrirtækinu og fær að auki greiddan bifreiðastyrk. Uppsagnarfrestur hans rennur ekki út fyrr en 1. apríl 2012,“ segir í yfirlýsingu frá Iceland Express. Félagið ætlar að kæra úrskurðinn til Héraðsdóms Reykjavíkur og fara fram á að honum verði hrundið.

„Matthías Imsland hefur í sínum fórum yfirgripsmiklar upplýsingar um starfsemi Iceland Express sem og er eðlilegt að stór hluti þeirra verði að teljast viðskiptaleyndarmál,“ segir ennfremur. „Það er skoðun stjórnar Iceland Express að með því að vinna að stofnun annars félags og vera í sams konar rekstri á uppsagnartímanum og vera hlutiafi í því, sé Matthías að brjóta gegn ráðningarsamingi sínum. Reyndar er stjórn félagsns þeirrar skoðunar að samkvæmt ráðningarsamningi sé Matthíasi ekki heimilt að koma að sams konar rekstri í 24 mánuði að uppsagnarfresti liðnum.“

Að lokum er fullyrt að aðrir aðilar sem koma að slíkum rekstri með Matthíasi og nýta sér upplýsingar um rekstur Iceland Express gætu skapað sér skaðabótaskyldu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×