Danir gætu þurft að taka upp evru 10. febrúar 2011 07:30 Lars Løkke rasmussen Vill að Danir setji sitt mark á aukið samstarf evruríkjanna.nordicphotos/AFP „
Svo gæti farið að á næstunni þurfi Danmörk að endurskoða afstöðu sína til evrunnar,“ sagði Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, í umræðum á danska þjóðþinginu í gær. Danir eru í Evrópusambandinu en hafa haldið í dönsku krónuna, þótt gengi hennar sé beintengt gengi evrunnar. Þjóðverjar og Frakkar hafa lagt til að efnahagslegt samstarf evruríkjanna verði mun nánara en verið hefur. Önnur ríki Evrópusambandsins hafa tekið misjafnlega vel í þær hugmyndir. Ummæli Rasmussens í gær tengjast þessu. Hann sagðist á miðvikudag vilja að Danir tækju þátt í þessu nána samstarfi evruríkjanna, en reyndu jafnframt að hafa áhrif á hvernig því verði háttað. Áður en af þátttöku Dana í nánara samstarfi evruríkjanna verður þurfi þó að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu í Danmörku um það, hvort landið eigi áfram að halda í krónuna eða hvort réttara sé að taka upp evru.- gb
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira