Lúxushótel auka gjaldeyristekjur um 18 milljarða á ári 26. október 2011 09:34
Greining Arion banka segir að möguleiki sé á að auka gjaldeyristekjur af ferðamönnum um 18 milljarða á ári í framtíðinni. Þetta er háð því að byggt verði lúxushótel við hlið Hörpu og að ráðist verði í hótelbyggingar Kínverjans Huangs Nubo á Grímsstöðum á fjöllum og í Reykjavík. Greiningin telur að gjaldeyristekjur af þessum framkvæmdum meðan á þeim stendur muni nema á bilinu 11 til 13 milljörðum króna. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að þessi hótel muni þar að auki skapa um 1.500 varanleg störf hér innanlands. Í Markaðspunktunum segir að erlend fjárfesting í ferðaþjónustu á næstu árum myndi brúa að hluta fyrirsjáanlegt gat í fjárfestingu á árunum 2012-2014. Ætla megi að fjárfestingarnar skapi um 1700-2100 ársverk á framkvæmdatíma. Samkvæmt þessu mati yrðu afleidd störf um helmingur beinna starfa. Samkvæmt upplýsingum frá World Tourist Organization má áætla að þörf sé á tveimur einstaklingum fyrir hvert herbergi á 5 stjörnu hóteli. Því myndu skapast um 1500 endanleg störf ef byggð yrðu 750 herbergi í hæsta gæðaflokki. „Ætla má að um 35-40% af fjárfestingu í hágæða hótelum séu vinnulaun. Því má áætla að vinnuliðurinn einn og sér skapi á bilinu 11-13 milljarða króna í gjaldeyristekjur á meðan framkvæmdum stendur,“ segir í Markaðspunktunum. „Miðað við 750 hótelherbergi og að hingað komi í auknum mæli ferðamenn sem eyða meira en hinn almenni ferðamaður má skjóta á að hér gætu skapast 18 milljara kr. í gjaldeyristekjur á ári hverju eftir að framkvæmdum lýkur.“
Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira