Gjaldeyrishöftin valda hækkunum á húsnæðisverði 29. apríl 2011 07:47
Ein afleiðing gjaldeyrishaftanna er að húsnæðisverð er á uppleið. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningar Arion banka þar sem fjallað er um verðbólgumælinguna í apríl. Húsnæðisliðurinn var einn af þeim þáttum sem juku verðbólguna í mánuðinum. „Þrátt fyrir aukin umsvif á fasteignamarkaði má ekki greina samsvarandi aukningu í nýjum útlánum samkvæmt upplýsingum úr Peningamálum. Líklega eru fjárfestar nú farnir að sýna fasteignum aukinn áhuga og peningur streymir því úr innlánum inn á fasteignamarkaðinn,“ segir í Markaðspunktunum. Greining segir að þetta sé í raun eðlileg þróun enda liggur nú fyrir „plan“ hjá ríkisstjórninni um hvernig staðið verður að afnámi hafta og þar kemur skýrt fram að innlendir fjárfestar eru þeir síðustu til að mega fara með peninga sína úr landi. „Því er ljóst aukinn áhugi fjárfesta á fasteignamarkaði má rekja til þess að það eru og verða áfram fáir aðrir fjárfestingakostir í boði enda útlit fyrir að gjaldeyrishöftin verði hér a.m.k. næstu fimm árin ef ekki lengur,“ segir í Markaðspunktunum. „Annar þáttur sem spilar ekki síður stórt hlutverk er talsverð uppsöfnuð eftirspurn sem er til staðar á íbúðamarkaði, sem endurspeglast m.a. í háu leiguverði. Sú eftirspurn er líklega að færa sig yfir á kaupmarkaðinn nú í auknum mæli. Afleiðing vegna þessa má nú greina í hækkun fasteignaverðs sem skilar sér í aukinni verðbólgu.“
Mest lesið Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Sjá meira