Landlæknisembættið er ógn við heilsu Íslendinga Árni Richard Árnason skrifar 19. september 2011 10:00 Haustið 2007 gekkst ég undir krossbandsaðgerð í Orkuhúsinu með skelfilegri afleiðingum en mig hafði nokkurn tímann órað fyrir. Frá vorinu 2009 hef ég gengist undir níu aðgerðir til að bæta upp fyrir tjón sem ég hef hlotið. Þessar níu aðgerðir voru gerðar í Danmörku og Finnlandi af læknum sem eru virtir prófessorar í bæklunarlæknisfræði. Af sjúkraskrám og samtölum mínum við mína lækna vöknuðu grunsemdir um að ég hafi verið fórnarlamb margvíslegra mistaka í Orkuhúsinu. Þar á meðal var krossbandið rangt staðsett og sjúkraþjálfun var ekki í samræmi við viðurkenndar aðferðir. Það hafi haft í för með sér að nýja endurgerða krossbandið slitnaði og tveir vöðvar í lærinu eyðilögðust. Í upphafi árs 2009 sendi ég kvörtunarbréf til landlæknis. Ég fékk ekki svar við því bréfi. Sumarið eftir sendi ég annað bréf, sem var loks svarað. Samkvæmt lögum um landlækni þá á embættið að afla umsagnar frá óháðum sérfræðingi. Landlæknir fékk þá Magnús Pál Albertsson, handarskurðlækni í Orkuhúsinu og meðeiganda Orkuhússins, til að gefa álit sitt. Hvernig handarskurðlæknir og meðeigandi Orkuhússins á að geta talist hvort tveggja í senn óháður og sérfræðingur í krossbandsaðgerðum skil ég ekki. Yfir því og öðru hef ég kvartað til velferðarráðuneytisins í bréfum sem voru póstlögð í janúar og apríl þessa árs. Ég hef enn ekki fengið svör frá ráðuneytinu við umkvörtunarefnum mínum þó að nú sé liðið að hausti. Í apríl síðastliðnum barst mér álit landlæknis þar sem kemur fram að „ekkert í málsgögnum bendir til að vanræksla eða mistök hafi átt sér stað“, þrátt fyrir að í málsgögnum sé að finna sjúkraskrá frá Uffe Jørgensen, prófessor í bæklunarlækningum í Kaupmannahöfn, þar sem kemur fram fullyrðing hans um að krossbandið hafi verið rangt staðsett. Embættið hefur gert allt til að reyna að koma í veg fyrir að ég geti svarað álitinu. Álitinu fylgdu ekki umsagnir álitsgjafa og í því var því ekki að finna neinar upplýsingar um málsatvik, umkvörtunarefni eða rökstuðning eins og gert er ráð fyrir í lögum. Hvernig ég átti að geta svarað því skil ég ekki. Í öðru lagi voru mér gefnar 16 vikur til að svara álitinu, en sá tími reyndist mun styttri þar sem álitið var póstlagt nokkrum vikum eftir dagsetningu þess. Eftir enn eina umkvörtun mína bárust mér loks gögnin frá landlækni, ásamt bréfi þar sem kom fram að svör yrðu að berast innan fjögurra vikna (í stað 16 vikna áður). Starfsmenn landlæknis svöruðu ekki beiðnum mínum um aukinn svarfrest í tölvupósti þó ég hafi lýst því að ég væri nýkominn úr aðgerð og hefði því ekki tök á að senda svör mín í tíma. Umsagnir álitsgjafa eru skrautleg lesning þar sem skín í gegn ásetningur þeirra til að hylma yfir mistök. Fjölmargar rangfærslur koma fram ásamt fjarstæðukenndum fullyrðingum. Til dæmis er því haldið fram að skaði á vöðvum hafi ekki verið afleiðing af krossbandsaðgerðinni jafnvel þó að skorið hafi verið í nákvæmlega sömu vöðva í umræddri aðgerð. Einnig er ýjað að því að annar vöðvi hafi slitnað en kemur fram í sjúkraskrám og að prófessor í bæklunarlækningum hafi ruglast á vöðvum sem hann gerði aðgerð á. Það er ekki minnst á mörg umkvörtunarefni mín, og þess í stað er oft fjallað um eitthvað sem hafði ekkert að gera með mínar umkvartanir. Síðast en ekki síst þá heldur álitsgjafi því fram að krossbandið hafi verið rétt staðsett. Hins vegar hef ég sjálfur getað sannað, eftir að hafa lesið tugi læknagreina, að staðsetning krossbandsins var röng. Á því hef ég einnig fengið staðfestingu frá tveimur öðrum bæklunarlæknum sem sérhæfa sig í krossbandsaðgerðum. Framkoma landlæknis gagnvart mér hefur fyllt mig viðbjóði á íslenskri stjórnsýslu. Ég get ekki lýst því með orðum hversu mikið embættið hefur bætt á vanlíðan mína í baráttu minni við að fá góðan og heilbrigðan fótlegg aftur. Það er klárt mannréttindabrot að mál mitt fái ekki faglega umfjöllun óháðra sérfræðinga. Landlæknisembættið ætti að halda hlífiskildi yfir sjúklingum og verja þá fyrir hættunni á mistökum af hendi meðferðaraðila. Þess í stað heldur embættið hlífiskildi yfir mistökum og níðist á sjúklingum. Mistökin sem ég varð fyrir flokkast ekki undir óhapp heldur þekkingarleysi og þeir læknar sem stóðu að aðgerðinni gætu verið að gera sömu mistök á tugum sjúklinga á ári hverju. Ég velti því fyrir mér hversu margir Íslendingar hafi orðið fyrir læknamistökum sem rekja má til ófaglegs eftirlits Landlæknisembættisins? Af minni reynslu að dæma þá borgar sig ekki fyrir sjúklinga að kvarta yfir mistökum í heilbrigðisþjónustu til landlæknis enda munu líkur á skaðabótum stórminnka við óhlutlausa og rangláta afgreiðslu embættisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Skoðun Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun