Fyrr í vikunni var lögregla kölluð að heimili á höfuðborgarsvæðinu vegna ágreinings um tölvunotkun. Þar áttu mæðgin í útistöðum en þrætueplið var tölvunotkun sonarins.
Móðirin vildi meina að tölvunotkunin bitnaði á náminu en pilturinn sá hlutina ekki sömu augum.
Reynt var miðla málum og síðan farið af vettvangi.
Ekki er vitað hvort viðvarandi lausn fannst á tölvunotkun unglingsins á þessu heimili en vandamálið er ekki með öllu óþekkt. Um það vitna önnur útköll lögreglu af sama tagi.
Móðir hringdi í lögreglu vegna tölvunotkunar sonarins
