Skattar einstæðra tekjulágra foreldra hækkuðu mest 16. maí 2011 19:14
Skattbyrði jókst mest á einstæða tekjulága foreldra á Íslandi síðasta ári. Almennt hækkuðu skattar meira hér en í nokkru öðru OECD ríki. Þetta kemur fram í nýjustu skattaúttekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD. Þar eru teknir saman skattar á laun einstaklinga og fjölskyldna í mismunandi tekjuhópum í aðildarríkjunum, en inni í skatthlutfallinu eru tekjuskattur, lífeyrisgreiðslur og önnur launatengd gjöld, eftir að tillit hefur verið tekið til bóta. Á Íslandi hækkaði hlutfallið um 3,3 prósentustig á síðasta ári frá árinu áður, fyrir einstakling með rúmlega 360 þúsund krónur í meðaltekjur. Skattarnir hækkuðu enn meira fyrir einstæða foreldra með tvö börn á framfæri og tekjur undir meðallagi, en skattbyrði þeirra hækkaði um 5,6 prósentustig. Raunar jókst skattbyrðin í tuttugu og tveimur af þrjátíu og fjórum aðildarríkjum stofnunarinnar á síðasta ári, en hvergi jafnmikið og á Íslandi. Eftir sem áður er skattbyrðin minni hér en víðast annarstaðar. Fyrir einstakling með meðaltekjur er skattbyrðin nú undir meðaltali OECD, sem er um 35 prósent. Íslendingar komast þó ekki með tærnar þar sem skattakonungar Evrópu hafa hælana, en meðallaunamaður í Belgíu greiðir meira en 55 prósent launa sinna í skatt. Fyrir einstætt foreldri undir meðaltekjum er skatturinn sömuleiðis undir meðaltali, sem er tæp 16 prósent í OECD ríkjunum.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Sjá meira