Microsoft lækkar tölvukostnaðinn hjá skólum landsins 1. mars 2011 10:05
Microsoft kynnti í dag nýtt fyrirkomulag á talningu hugbúnaðarleyfa í skólum sem mun þýða verulegt hagræði fyrir menntastofnanir um allan heim, þar á meðal hér á landi. Breytingin felst í því að í stað þess að telja þær tölvur sem notaðar eru innan hvers skóla og miða hugbúnaðarleyfafjölda við það er fjöldi hugbúnaðarleyfa miðaður við starfsmannafjölda skólans. Í tilkynningu segir að svo til allir íslenskir skólar eru með samninga við Microsoft um notkun Windows-stýrikerfa og Office-skrifstofuhugbúnaðar auk þess sem margir nýta fleiri lausnir frá Microsoft við rekstur sinn. Kostnaður skólanna við hugbúnaðarleyfi Microsoft mun því lækka umtalsvert í flestum tilvikum. Lækkunin verður mismunandi milli skóla en miðað við áætlanir Microsoft Íslandi verður ekki óalgengt að kostnaðarlækkun verði á bilinu 20 - 50% í skólum hér á landi. Staða Microsoft-samninga íslenskra skóla er nokkuð mismunandi, en stór hluti skólanna er þó í þeirri stöðu að tvö ár eru nú liðin af þriggja ára samningi. Microsoft Íslandi hefur ákveðið að bjóða íslenskum skólum sem eru í þessari stöðu að skipta nú þegar yfir í nýja hugbúnaðarleyfafyrirkomulagið svo þeir geti strax notið hagræðis af breytingunni. „Við erum mjög ánægð með að geta boðið íslenskum skólum að draga úr rekstrarkostnaði sínum með þessum hætti, enda ekki vanþörf á í núverandi efnahagsástandi. Microsoft kemur með þessari umfangsmiklu kerfisbreytingu á heimsvísu til móts við starfsemi menntastofnana og við teljum mjög mikilvægt að skólar hér á landi geti strax notið ávinningsins jafnvel þótt ár sé eftir af núverandi samningi,“ segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi í tilkynningunni.
Mest lesið Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Fleiri fréttir Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Sjá meira