Viðskipti innlent

Verðbólgan á Íslandi undir meðaltali EES

Í fyrsta sinn síðan í janúar árið 2008 mælist verðbólgan hér á landi undir meðalverðbólgunni í ríkjum EES. Þannig mældist verðbólgan hér á landi í janúar 2,2% miðað við samræmda vísitölu EES, og lækkar hún töluvert milli mánaða en hún hafði verið 3,5% í desember.

Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að af löndum EES var verðbólgan mest í janúar í Rúmeníu (7,0%), næstmest á Eistlandi (5,1%) og þriðja mest á Grikklandi (4,9%). Minnst var verðbólgan í Sviss (0,2%) og svo á Írlandi (0,2%), en þetta er í fyrsta sinn síðan í febrúar árið 2009 sem tólf mánaða taktur verðbólgunnar mælist ekki með neikvæðum formerkjum á Írlandi.

Hvað Ísland varðar hefur árstaktur verðbólgu á þennan mælikvarða hjaðnað verulega síðasta árið. Í janúar í fyrra mældist hún til að mynda 10,6% en sem kunnugt er mældist verðbólgan lengi vel langmest hér á landi af öllum ríkjum innan EES.

Meginástæða hjöðnunar verðbólgunnar hér á landi er að áhrif gengislækkunar krónunnar á verðbólgu sem varð í aðdraganda og samhliða hruni bankakerfisins hér á landi á árinu 2008 eru nú horfin, auk þess sem mikill slaki er á vinnumarkaði og raunar í hagkerfinu öllu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×