ASÍ: Vörukarfan hækkaði mest í Hagkaupum og Bónus 1. mars 2011 13:11
Miklar hækkanir hafa orðið frá því í haust á grænmeti, ávöxtum, mjólkurvörum, ostum og kjötvörum í vörukörfu ASÍ, að því er fram kemur í nýrri mælingu verðlagseftirlitsins sem gerð var nú í febrúar. Við samanburð á mælingu verðlagseftirlitsins frá því í nóvember 2010 og nú í febrúar, hækkar vörukarfan í öllum verslunum nema 11/11 og Samkaupum-Úrvali, en mesta hækkunin er í Hagkaupum um 9,1% og Bónus um 5,1%. Kostur neitaði að taka þátt í mælingunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ um málið. Þar segir að í lágvöruverðverslununum hækkaði verð vörukörfunnar mest hjá Bónus um 5,1% sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á grænmeti og ávöxtum (16,4%), mjólkurvörum, ostum og eggjum (7%) og kjötvörum (5,8%). Í Krónunni hækkaði vörukarfan um 3,5% sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á grænmeti og ávöxtum (16%), mjólkurvörum, ostum og eggjum (6,5%) og kjötvörum (6,1%). Í Nettó hækkaði vörukarfan um 1,1%. Í stórmörkuðum og klukkubúðum hækkaði verð vörukörfunnar mest hjá Hagkaupum um 9,1%, sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á kjötvörum (29,8%), grænmeti og ávöxtum (14,6%) og mjólkurvörum, ostum og eggjum (4,6%). Í Nóatúni hækkaði vörukarfan um 4,5% sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á grænmeti og ávöxtum (12,7%), kjötvörum (5,2%) og sykri, súkkulaði, sælgæti og fl.(11,2%). Í 10-11 hækkaði vörukarfan um 4,4% sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á kjötvörum (5,2%), grænmeti og ávöxtum (14,1%) og mjólkurvörum, ostum og eggjum (8,8%). Í Samkaupum-Strax hækkaði vörukarfan um 2,3%. Verð vörukörfunnar hefur lækkað hjá 11/11 um (-1,2%) vegna lækkunar á sætindum um (-6,7%) og snyrtivörum um (-7,4%). Í Samkaupum-Úrvali lækkaði vörukarfan um (-0,6%) vegna lækkunar á sætindum um (-13,3%).
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira