Útgáfa íbúðabréfa ÍLS í ár allt að 38 milljarðar 1. mars 2011 07:59
Áætluð útgáfa íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs (ÍLS) árið 2011 er 30 – 38 milljarðar króna að nafnverði sem samsvarar um 40 – 50 milljörðum króna að markaðsvirði. Íbúðalánasjóður áætlar að ný útlán sjóðsins verði 27 – 35 milljarðar króna á árinu 2011, sem er aukning útlána milli ára. Þar af er gert ráð fyrir að leiguíbúðalán verði 8 – 10 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum. Þar segir að nokkur óvissa ríkir um útlána- og útgáfuáætlanir fyrir árið 2011 og nákvæmar tölur um áætluð útlán og útgáfu íbúðabréfa er því ekki hægt að gefa upp. Þannig geta einstaka tölur í útboðum færst á milli ársfjórðunga og veltur það á markaðsaðstæðum hverju sinni. Íbúðalánasjóður áætlar að greiða lánardrottnum sínum 65 - 73 milljarða króna árið 2011 og er stærstur hluti þeirra tilkominn vegna afborgana íbúðabréfa.Áætlun þessi miðast við núverandi aðstæður á fasteigna- og íbúðalánamarkaði. Verði breytingar á markaðsaðstæðum má reikna með að ofangreind áætlun geti breyst. Íbúðalánasjóður endurskoðar áætlanir sínar ársfjórðungslega og oftar ef þörf krefur. Fyrir liggur að ríkissjóður muni leggja sjóðnum til aukið eigið fé sem nemur 33 milljarðar króna, sem gert er ráð fyrir að komi til afhendingar í formi RIKH 18 1009 á fyrsta ársfjórðungi 2011. Kannað verður með möguleika á sölu ríkisbréfanna ef markaðsaðstæður leyfa og gæti slík sala haft áhrif til lækkunar á útgáfu íbúðabréfa á árinu 2011. Ekki er vitað með vissu hve stór hluti flokksins yrði seldur né hversu mikið áætluð útgáfa íbúðabréfa kynni að lækka á árinu 2011 en sjóðurinn mun uppfæra áætlanir sínar um útgáfu þegar það skýrist nánar.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira