Tæplega 1800 umsóknir um greiðsluaðlögun óafgreiddar Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. nóvember 2011 09:33 Kringlan. Margar umsóknir um greiðsluaðlögun eru óafgreiddar hjá Umboðsmanni skuldara. mynd/ daníel.
Embætti Umboðsmanns skuldara á ólokið afgreiðslu á 1.790 umsóknum um greiðsluaðlögun af 3.778 umsóknum sem borist hafa síðan að embættið var stofnað. Þetta kemur fram í svari Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur, þingmanns Hreyfingarinnar. Embætti skuldara var stofnað þann 1. ágúst í fyrra og hefur embættið fengið 5.900 mál til afgreiðslu. Þar af eru 990 erindi og ábendingar frá skuldurum, 3.778 umsóknir um greiðsluaðlögun, 1.025 umsóknir um ráðgjöf og 107 umsóknir vegna tímabundins úrræðis fyrir einstaklinga sem eiga tvær fasteignir til heimilisnota. Að meðaltali hefur embætti umboðsmanns skuldara afgreitt um 157 mál í hverjum mánuði frá stofnun en þar á meðal er fjöldi umsókna um greiðsluaðlögun sem samþykktar hafa verið og sendar áfram til umsjónarmanna. Að jafnaði hafa embættinu borist um 66 erindi og ábendingar frá skuldurum á mánuði, 234 umsóknir um greiðsluaðlögun, 58 umsóknir um ráðgjöf og sjö umsóknir vegna tímabundins úrræðis fyrir einstaklinga sem eiga tvær fasteignir til heimilisnota. Fjöldi erinda og ábendinga frá skuldurum náði hámarki í mars og apríl á þessu ári vegna óska um að embættið færi yfir endurútreikning lána með ólögmæta gengistryggingu. Þá bárust mjög margar umsóknir um greiðsluaðlögun í júní sem líklega má rekja til þess að ákvæði til bráðabirgða í lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga um frestun greiðslna við móttöku umsókna um greiðsluaðlögun féll úr gildi 1. júlí. Eftir þann tíma hafa að meðaltali 33 umsóknir um greiðsluaðlögun borist embættinu á mánuði.
Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Sjá meira