Íslandsbanki á hlut í 27 félögum 10. nóvember 2011 11:18
Í heild eiga Íslandsbanki og Miðengi hlut í 27 félögum, Íslandsbanki í 5 félögum en Miðengi í 22. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum í framhaldi frétta um að bankarnir eigi 137 félög sem eru í óskyldri starfsemi. Í tilkynningunni segir að Miðengi ehf, eignarhaldsfélag í eigu Íslandsbanka, fari með eignarhald og umsýslu fyrirtækja í eigu bankans. Miðengi hefur lagt ríka áherslu á að vinnubrögð félagsins séu gagnsæ og starfsreglur skýrar auk þess sem lögð hefur verið áhersla á opið söluferli eigna. Stefna bankans er að selja félög sem hann hefur eignast, að hluta til eða að fullu, og eru í óskyldum rekstri. Hafa ber í huga að í sumum tilvikum eru fleiri en ein kennitala tengd félagi og því getur verið villandi að telja kennitölur frekar en hvert félag fyrir sig. Að auki er nokkuð um að lítil starfsemi sé í félögum í eigu bankans, t.a.m. í félögum sem stofnuð hafa verið um stakar fasteignir. 11 félög eru utan um fasteignir, þar af eru 9 í Miðengi. Þá eiga Íslandsbanki og Miðengi 10% hlut eða undir í 8 félögum en 100% hlut í 8 félögum, þar af eru 6 fasteignafélög sem sum hver hafa verið stofnuð um eina fasteign með litla sem enga starfsemi. Stærsta einstaka rekstrarfélagið sem er í fullri eigu bankans er Jarðboranir en félagið er í söluferli hjá Miðengi.
Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Sjá meira