VBS á borð sérstaks saksóknara 3. janúar 2011 00:00 Fyrrverandi forstjóri VBS Slitastjórn VBS Fjárfestingarbanka er sögð undrast ýmis viðskipti stjórnenda bankans áður en Fjármálaeftirlitið tók hann yfir. Fréttablaðið/GVA
Slitastjórn VBS Fjárfestingarbanka undirbýr það nú að stefna nokkrum málum tengdum viðskiptum bankans fyrir fall hans í fyrra og er líklegt að einhver þeirra lendi á borði sérstaks saksóknara. Ekki er búið að taka endanlega ákvörðun um það hvaða mál fara til sérstaks saksóknara en nokkur eru sögð koma til álita, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Hvorki Hróbjartur Jónatansson né Þórey S. Þórðardóttir, sem sæti eiga í slitastjórn VBS, vildu tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í gær. Þórey sagði þó að verið væri að vinna í ýmsum málum. Hún vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. Fréttablaðið greindi frá því í desember að verðmæti eignasafns VBS hafi verið fært úr 52 milljörðum króna í tíu og aðeins einn óveðsettur milljarður króna væri til á móti 48 milljarða króna kröfum í þrotabúið. Þá kom fram að vísbendingar væru um að stjórnendur bankans hefðu lánað til fasteignaverkefna með veði í lóðum og húsum án þess að húsin hefðu nokkru sinni risið. Skuldabréf tengd lánveitingunum hefðu verið sett í eignastýringu VBS og viðskiptavinir bankans í raun tekið alla áhættuna. Fasteignaverkefnin eru flest hver í nágrenni Selfoss, Mosfellsbæjar, á Suðurnesjum og við Akureyri. Útlán VBS til fasteignaverkefna námu 20 milljörðum króna og jafngildir það 76 prósentum af heildarútlánum. Samkvæmt athugun endurskoðenda á rekstri bankans fyrir hrun er talið víst að hann hafi verið ógjaldfær í ársbyrjun 2008, tveimur árum áður en Fjármálaeftirlitið tók hann yfir í fyrravor. Eftir því sem næst verður komist telur slitastjórn VBS nokkurn fjölda viðskipta fyrrverandi stjórnenda bankans í besta falli undarlegan. Stjórnin hefur rift fjölda gjörninga, svo sem eignatilfærslum, sem innsiglaðir voru á meðan bankinn var enn starfandi. Verðmæti samninganna nemur 5,1 milljarði króna. Enn á eftir að rifta fleiri samningum sem taldir eru hafa verið gerðir í þeim tilgangi að snuða þrotabúið og gæti verðmæti þeirra numið í kringum tveimur milljörðum króna til viðbótar. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira