Marel sýknað af 650 milljóna kröfu Glitnis 12. apríl 2011 12:22
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Marel hf. af kröfu Glitnis vegna vanefnda á fimm afleiðusamningum. Í öllum tilvikum var um að ræða vaxta- og gjaldmiðlasamninga sem Marel gerði til að verjast gengisáhættu. Málið snérist um hvernig standa bæri að uppgjöri samningana. Samkvæmt þeirri uppgjörsleið sem Glitnir taldi rétta áleit bankinn að Marel skuldaði sér tæpar 4 milljónir evra eða um 650 milljónir kr. Í niðurstöðum dómsins segir að ágreiningur aðila snýst um uppgjör svokallaðra afleiðusamninga en þeir gerðu með sér ýmsa slíka samninga. Þeir samningar, er mál þetta varðar, voru vaxta- og gjaldmiðlaskiptasamningar en með slíkum samningum er átt við samninga þar sem aðilar skiptast á höfuðstól tveggja mynta á ákveðnu gengi í upphafi samnings og í framtíðinni og skiptast jafnframt á vaxtagreiðslum yfir ákveðið tímabil. Fram hefur komið í málinu að á árinu 2006 fékk Marel lán að fjárhæð sex milljarðar króna hjá Glitni. Vextir af því láni skyldu greiðast á sex mánaða fresti, í febrúar og ágúst ár hvert. Tekjur Marel eru 99% í erlendri mynt og til þess að minnka gengisáhættu í sambandi við lánið gerði Marel skiptasamning við Glitni til þess að hafa jafnan til ráðstöfunar íslenskar krónur á gjalddögum lánsins í febrúar og ágúst og þannig hugðist stefndi tryggja sig gagnvart skuldbindingum sínum við Glitni vegna lánsins. Síðan segir í dóminum að það var Glitnir sem vanefndi samningana fimm og má það rekja til falls bankans haustið 2008 en þá voru samningarnir enn í gildi og átti Glitnir raunar að greiða Marel vexti á gjalddaga í febrúar 2009 sem bankinn gerði ekki. Í dóminum segir að við þessa vanefnd Glitnis féll sú gjaldeyrisvörn sem Marel taldi sig hafa tryggt með gerð framangreindra vaxta- og gjaldmiðlaskiptasamninga. Fyrirsjáanleg vanefnd varð strax við fall bankans 6. október 2008 og raunveruleg vanefnd á gjalddaga 8. febrúar 2009. Marel lýsti því hins vegar yfir í tvígang að hann vildi efna samningana fyrir sitt leyti. Niðurstaðan varð því að Marel skyldi sýknað af öllum kröfum Glitnis og var Glitni jafnframt gert að greiða Marel 1,5 milljónir kr. í málskostnað.
Mest lesið Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Sjá meira