Kreditkort brýtur gegn ákvæðum um neytendalán og eftirlit 23. september 2011 13:33 Kreditkort.
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest úrskurð Neytendastofu um að Kreditkort bryti bæði gegn ákvæðum laga um neytendalán og laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu með greiðsludreifingunni. Neytendastofa gerir ekki athugasemdir við að neytendum sé boðið upp á þessa leið en stofnunin telur greiðsludreifinguna vera neytendalán sem gera verður sjálfstæðan skriflegan samning um þar sem fram kæmu allar þær upplýsingar sem lánveitandi á að veita neytanda skv. lögum um neytendalán. Kreditkort ætlar að breyta fyrirkomulagi við afgreiðslu greiðsludreifingar í samræmi við niðurstöðu áfrýjunarnefndar neytendamála, þess efnis að gera þurfi sjálfstæðan skriflegan samning um slíka þjónustu til lengri tíma en þriggja mánaða þar sem fram komi allar upplýsingar sem lánveitandi á að veita neytanda samkvæmt lögum um neytendalán. Í tilkynningu frá Kreditkortum hefur þessi niðurstaða í för með sér verulegt óhagræði fyrir neytendur því allir kortaútgefendur MasterCard og Visakorta hafa boðið korthöfum upp á framkvæmd greiðsludreifingar símleiðis, ekki bara Kreditkort. Svo segir í tilkynningunni: „Fyrirgreiðsla með þessum hætti hefur tíðkast í 20 ár og við höfum litið svo á að með því væri verið að veita viðskiptavinum greiðslufrest. Slík þjónusta verður nú ekki lengur í boði símleiðis og munu korthafar framvegis þurfa að ganga frá skriflegum greiðsludreifingarsamningum, með tilheyrandi umstangi og kostnaði.“
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Sjá meira