Landsbankinn skrifar undir samkomulag við lánatryggingasjóð kvenna 23. september 2011 13:58 Lánatryggingasjóður kvenna.
Landsbankinn hefur skrifað undir samstarfssamning við Svanna - lánatryggingasjóð kvenna, um að bankinn veiti konum í atvinnurekstri lán sem sjóðurinn og bankinn ábyrgjast sameiginlega. Landsbankinn veitir helming ábyrgðar á móti sjóðnum og tryggir þannig konum í nýrri starfsemi rýmri aðgang að fjármagni en ella og eykur möguleika þeirra til að stofna fyrirtæki. Samstarfssamningurinn er liður Landsbankans í að efla atvinnulíf og hvetja til nýsköpunar í landinu. Lánatryggingasjóður kvenna var stofnaður árið 1997 sem tilraunaverkefni félagsmálaráðuneytis, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis og Reykjavíkurborgar til þriggja ára. Hann var endurvakinn þann 8.mars síðastliðinn og er nú í eigu velferðarráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og Reykjavíkurborgar og eru stjórnarmenn þau Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Sigrún Elsa Smáradóttir og Jón Steindór Valdimarsson. Svanni-lánatryggingasjóður kvenna tekur formlega til starfa í dag, 23.september og verður hægt að sækja um lánatryggingar á vefsíðu sjóðsins, svanni.is. Hlutverk hans er að styðja konur til þátttöku og nýsköpunar í atvinnulífinu með því að gangast í ábyrgð fyrir hluta af lánum þeirra. Tilgangur og markmið samstarfs Landsbankans og lánatryggingasjóðsins er að styðja við bakið á konum sem eiga og reka smærri fyrirtæki, að auka aðgengi kvenna að fjármagni, að fjölga störfum og stuðla að nýnæmi í atvinnulífi. Lántaki er skuldbundinn sjóðnum að fá ráðgjöf um útfærslu hugmyndar sinnar og ennfremur skal lántaki skila skýrslu vegna verkefnis eða ársskýrslu fyrirtækis hvert ár sem tryggingin er í gildi. Eignir sjóðsins nema rúmum 70 milljónum króna. Í áætlunum er gert ráð fyrir að samtals verði unnt að veita ábyrgðir fyrir allt að tvöfaldri stofnfjárhæð sjóðsins, eða um 140 milljónum króna. Umsýsla lánatryggingasjóðs kvenna er hjá Vinnumálastofnun og er verkefnastjóri Ásdís Guðmundsdóttir á Sauðárkróki.Nánar um Lánatryggingarsjóð kvenna Eingöngu eru veittar tryggingar hjá sjóðnum til verkefna eða fyrirtækja sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna. Gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/nýnæmi að einhverju marki. Einnig er krafa um að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna. Hægt er að sækja um lánatryggingu vegna eftirtalinna þátta: · Stofnkostnaðar · Markaðskostnaðar · Vöruþróunar · Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu vöru/þjónustu. Lánsfjárhæðir skulu ekki vera undir tveimur milljónum króna og að jafnaði skal ekki afgreiða lán yfir 10 milljónir króna en stjórn er þó heimilt að gera undantekningar með hliðsjón af eðli og tegund umsókna.
Mest lesið Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira