Skömm fjármálaráðherra Vilhelm Jónsson skrifar 21. desember 2011 06:00 Fjármálaráðherra þorir ekki að anda á bankasýsluna og fjármagnseigendur, sem halda ríkisstjórninni í heljargreipum í krafti auðvalds. Ábyrgð hans er mikil þegar hann rétti vogunarsjóðum og hrægömmum skuldakröfur á heimili og fyrirtæki á slikk, sem eru síðan rukkaðar af fullri hörku. Fjármálastofnarnir ætla svo að hámarka arðsemi með því að innheimta skuldug heimili og halda þeim í gíslingu með 110% leiðinni, sem er gjörsamlega galin og dæmd til að mistakast. Það verður samt að teljast með ólíkindum að á meðan horfum við upp á landið brenna og fjölskyldur flosna upp, heimili eru innleyst ásamt bílum vegna kolólöglegra myntkörfulána sem er haldið áfram að innheimta í skjóli ríkisstjórnarinnar. Það er með ólíkindum að almenningur skuli ekki reyna að mótmæla og andæfa þessu ástandi. Fólk lætur sig samt ekki vanta ef það getur fengið einhvers staðar ókeypis pylsur og kók eða horft á Gay Pride, með fullri virðingu fyrir því. Þúsundir heimila eru hættar að borga af skuldum sínum, og hafa þar af leiðandi meira til að spila úr, sem stjórnvöld kalla svo efnahagsbata! Jafnvel eru einhverjir sem taka sér Bjarna Ármannsson, fyrrverandi bankastjóra, sér til fyrirmyndar og eftirbreytni sem sagði óábyrgt að borga skuldir sínar. Svo því sé til haga haldið er ég ekki að verja óábyrgt fólk eða fyrirtæki sem borga ekki skuldir sínar, það má mín vegna fara lóðrétt á hausinn. Ekki vantaði stóryrðin hjá Steingrími þegar hann var í stjórnarandstöðu og steytandi hnefana í allt og alla sem honum var svo tamt á Alþingi. Það kæmi ekki til greina að borga Icesave, og engin þörf væri fyrir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kæmi. Það verður að teljast með ólíkindum viðsnúningurinn hjá honum að um leið og hann var kominn í stjórn var allt breytt og það skyldi borgað sama hvað það kostaði. Sem var réttlætt með að allar lánalínur væru lokaðar og ekki hægt að byrja uppbyggingu á Búðarhálsvirkjun, þar sem ekkert lánsfé fengist nema borga Icesave. Talað var um að Svavar Gestsson væri búinn að ná frábærum samningum og síðan átti Lee Buchheit að hafa fullkoma samningana. Iceland Food keðjan væri að seljast á fleiri hundruð milljarða og þrotabúið væri stútfullt af peningum! Heildarskuld Icesave innistæðanna er 1.320 milljarðar króna miðað við gengi í apríl 2009 (sem er viðmiðunargengi krafna í þrotabú Landsbankans). Bretar og Hollendingar lögðu hins vegar sjálfir út 1.150 milljarða króna til innistæðueigenda. Forgangskröfur eru 20.887 evrur pr. reikning sem er ca 674 milljarðar eða 51% af forgangskröfum. Skilanefnd Landsbankans áætlar 13 milljörðum króna hærri en sem nemur bókfærðum forgangskröfum í bankann. Enn er haldið að okkur villandi upplýsingum og gefið í skyn að það sé til fyrir þessari Icesave-kröfu ásamt vöxtum, þar sem þrotabúið og sala á Iceland Foods gæti þurrkað út Icesave. Eins og Financial Times greindi frá hefur skilanefnd Landsbankans ákveðið að skoða hvort hentugt sé að selja hlut sinn í Iceland Foods. Söluverðmæti hlutar skilanefndarinnar er talið liggja á bilinu 1,5-2 milljarðar punda samkvæmt Financial Times og fleiri aðilum, sem gera á bilinu 278-371 milljarða íslenskra króna samkvæmt þáverandi gengi. Skilanefndin hefur áður lýst því yfir að mat þeirra á þessari eign ásamt öðrum sé varfærið mat. Það er hæpið að fá mikið meira en 200 milljarða króna fyrir Iceland Food miðað við núverandi tilboð, sem segir hversu villandi staðreyndum hefur verið haldið á lofti. Það þarf engan stærðfræðing til að sjá að það vantar 600 milljarða til að klára að gera upp Icesave, miðað við samning Svavars og útreikning skilanefndar, ásamt ca 110 milljörðum í áfallna vexti. Stjórnarliðar ásamt elítunni sem er á ríkisspenanum og forkólfum í Sjálfstæðisflokki sem vildu samþykkja Icesave, hagræða sannleikanum og skauta framhjá staðreyndum og reyna að breiða yfir skömmina, með að halda á lofti villandi upplýsingum að þrotabúið geti borgað Icesave, sem er ekki rétt þar sem það dugir tæplega fyrir forgangskröfum. Ábyrgð fjármálaráðherra er mikil að hafa ætlað að undirgangast ólögvarða skuldakröfu sem við hefðum aldrei haft ráð á að borga, með tilheyrandi hörmungum og örbirgð fyrir almenning og komandi kynslóðir um ókomin ár, sem er eitt stærsta svínarí fyrr og síðar að gjafakvótanum frátöldum. Fjármálaráðherra kemur aldrei til með að geta hreinsað sig af þessu ódæði og reyndar ætti að draga hann fyrir landsdóm (ekki síður en Geir Haarde), fyrir að hafa ætlað að þvinga þessari kröfu upp á þjóðina sem hún hefði aldrei getað borgað. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun