Grunnhugmyndin í sjálfu sér ekki flókin 21. desember 2011 08:00 Arnór Sighvatsson
Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri segist skilja gagnrýni á flækjustig hinnar svokölluðu fjárfestingarleiðar bankans en segir grunnhugmyndina þó ekki flókna. Fjárfestingarleiðin er skref í áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta. Hún felur í grunninn í sér að bankinn mun standa fyrir gjaldeyrisútboðum þar sem hann kaupir erlendan gjaldeyri í skiptum fyrir krónur til innlendrar fjárfestingar. Þannig gefst eigendum aflandskróna tækifæri til að nota þær til fjárfestinga hér. Hefur leiðin verið gagnrýnd fyrir að vera of flókin, síðast af Gylfa Magnússyni, dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í síðustu viku. „Að vissu leyti skil ég þessa gagnrýni vel því skjalagerðin öll er flókin. Hún er flókin vegna þess að þar eru alls konar varnaglar sem taka á þeim sniðgöngumöguleikum sem leiðin gefur færi á og þarf að stemma stigu við,“ segir Arnór og heldur áfram: „Hins vegar er grunnreglan í þessu ekki flókin. Flestar tegundir fjárfestingar eru þarna opnaðar og það er alveg skýrt. Menn þurfa að koma með 50 prósent í erlendum gjaldeyri á móti krónunum til þess að tryggja að þetta verði í heild sinni hlutlaust gagnvart gjaldeyrisforðanum.“ Þá segir Arnór að hann hafi ekki orðið var við að þetta hafi verið að vefjast fyrir þeim einstaklingum sem hafi verið í sambandi við Seðlabankann varðandi leiðina. - mþl
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira