Dýrt að verjast árásum tölvuþrjóta 19. júní 2011 13:09 Hilmar V. Pétursson, framkvæmdastjóri CCP. Mynd/GVA
Árásir skemmdarvarga í tölvuheimum hleypa upp kostnaði við rekstur þeirra, segir Hilmar V. Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, hann segir vel hægt að verjast slíkum árásum en það sé dýrt. Tölvuþrjótar brutust inn í tölvukerfi japanska fyrirtækisins Sega um helgina. Þrjótarnir stálu persónuupplýsingum um eina komma þrjár milljónir viðskiptavina japanska tölvuleikjaframleiðandans. Upplýsingum um nöfn, fæðingardaga, netföng og lykilorð. Fjöldi fyrirtækja hefur orðið fyrir barðinu á tölvuþrjótum að undanförnu, ráðist hefur verið á tölvukerfi Sony, Nintendo, bandaríska þingsins, leyniþjónustu Bandaríkjanna CIA, FOX fréttastofunnar, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og spænska ríkislögreglustjórans - auk íslenska fyrirtækisins CCP sem á og rekur tölvuleikinn EVE Online. Tölvukerfi CCP lá niðri í sex klukkustundir vegna þessa í vikunni. Samkvæmt fregnum erlendra miðla eru það einkum tveir hópar skemmdarvarga í netheimum sem bera ábyrgð á árásunum, Anonymous og Lulz Security, eins og þeir kalla sig. Hilmar V. Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, telur tölvuþrjóta vera að sækja í sig veðrið en árásir hafa magnast umtalsvert síðustu mánuði. „Þetta er framkallað með svokölluðum dotnetum þar sem fólk er búið að komast yfir sýktar tölvur notenda sem það síðan beitir til að framkalla svona árásir." Spurður hvort tölvuþrjótarnir vinni samkvæmt hugmyndafræði eða um hvort skemmdarvarga sé að ræða svarar Hilmar: „Ég get ekki séð það. Mér sýnist þetta var skemmdarfíkn og skæruliðastarfsemi." Eitthvað hefur gengið að hafa uppi á skemmdarvörgum. 32 einstaklingar voru handteknir í Tyrklandi í vikunni, samkvæmt BBC, en þeir eru taldir meðlimir í Anonymous. Fyrir níu dögum handtók spænska lögreglan þrjá einstaklinga sem taldir eru í sama hópi tölvuþrjóta. Handtakanna var hefnt með árásum á opinberar vefsíður í Tyrklandi og á Spáni. Fyrirtæki reyna að verjast árásum sem þessum. Hilmar segir slíkt kosta sitt. „Það er í sjálfu sér ekki flókið en það er kostnaðarsamt."
Tengdar fréttir Brotist inn í tölvukerfi söluaðila bandaríska hersins Lockheed Martin, sem selur bandaríska hernum vopn og flugvélar og er umsýslu- og þjónustuaðili upplýsingakerfa bandaríska ríkisins, varð fyrir alvarlegri tölvuárás hinn 21. maí síðastliðinn. Fyrirtækið, sem framleiðir meðal annars F16 orrustuþotur sem Bandaríkjaher notar, greindi frá þessu í gærkvöldi en starfsmenn þess segja að tekist hafi að fyrirbyggja að viðkvæmar persónuupplýsingar kæmust í hendur óprúttinna aðila. 29. maí 2011 10:45 Vefur lögreglunnar lá niðri vegna tölvuhakkara Heimasíða embættis spænska ríkislögreglustjórans lá niðri í um klukkustund í gærkvöld eftir að tölvuhakkarar réðust á síðuna. Málið er litið alvarlegum augum en embættið hefur ekki staðfest að samtökin Anonymous hafi staðið á bak við árásina. Yfirlýsing þess efnis birtist þó á heimasíðu samtakanna. Talið er að þau hafi ráðist á heimasíðu ríkislögreglustjórans vegna þess að þrír einstaklingar sem tengjast samtökunum voru handteknir á föstudaginn. 13. júní 2011 14:50 Stálu upplýsingum um 1,3 milljónir viðskiptavina Tölvuþrjótar brutust inn í tölvukerfi japanska tölvuleikjaframleiðandans Sega um helgina og stálu þaðan persónuupplýsingum um 1,3 milljónir viðskiptavina fyrirtækisins. Um er að ræða nöfn, fæðingardaga, netföng og lykilorð viðskiptavinanna. 19. júní 2011 09:26 Harðskeyttir hakkarar Tölvuþrjótar hafa verið athafnasamir undanfarna daga og ráðist á tölvukerfi og heimasíður fjölmargra fyrirtækja og opinbera stofnana. 14. júní 2011 08:18 Tölvuþrjótar ráðast á heimasíðu EVE Online Alræmdu tölvuhakkarnir í hópnum LulzSec tilkynntu rétt í þessu árás á heimasíðu tölvuleiks CCP, EVE Online. Framkvæmdastjóri CCP vill ekki tjá sig um málið. 14. júní 2011 17:51 Tölvuþrjótar brutust inn á síðu CIA Hópur tölvuhakkara, sem kallar sig Lulz Security, réðst í gærkvöld á vefsíðu bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Talið er að sami hópur hafi hakkað sig í fyrradag inn á vef EVE Online sem íslenska fyrirtækið CCP á og rekur. 16. júní 2011 07:59 Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira
Brotist inn í tölvukerfi söluaðila bandaríska hersins Lockheed Martin, sem selur bandaríska hernum vopn og flugvélar og er umsýslu- og þjónustuaðili upplýsingakerfa bandaríska ríkisins, varð fyrir alvarlegri tölvuárás hinn 21. maí síðastliðinn. Fyrirtækið, sem framleiðir meðal annars F16 orrustuþotur sem Bandaríkjaher notar, greindi frá þessu í gærkvöldi en starfsmenn þess segja að tekist hafi að fyrirbyggja að viðkvæmar persónuupplýsingar kæmust í hendur óprúttinna aðila. 29. maí 2011 10:45
Vefur lögreglunnar lá niðri vegna tölvuhakkara Heimasíða embættis spænska ríkislögreglustjórans lá niðri í um klukkustund í gærkvöld eftir að tölvuhakkarar réðust á síðuna. Málið er litið alvarlegum augum en embættið hefur ekki staðfest að samtökin Anonymous hafi staðið á bak við árásina. Yfirlýsing þess efnis birtist þó á heimasíðu samtakanna. Talið er að þau hafi ráðist á heimasíðu ríkislögreglustjórans vegna þess að þrír einstaklingar sem tengjast samtökunum voru handteknir á föstudaginn. 13. júní 2011 14:50
Stálu upplýsingum um 1,3 milljónir viðskiptavina Tölvuþrjótar brutust inn í tölvukerfi japanska tölvuleikjaframleiðandans Sega um helgina og stálu þaðan persónuupplýsingum um 1,3 milljónir viðskiptavina fyrirtækisins. Um er að ræða nöfn, fæðingardaga, netföng og lykilorð viðskiptavinanna. 19. júní 2011 09:26
Harðskeyttir hakkarar Tölvuþrjótar hafa verið athafnasamir undanfarna daga og ráðist á tölvukerfi og heimasíður fjölmargra fyrirtækja og opinbera stofnana. 14. júní 2011 08:18
Tölvuþrjótar ráðast á heimasíðu EVE Online Alræmdu tölvuhakkarnir í hópnum LulzSec tilkynntu rétt í þessu árás á heimasíðu tölvuleiks CCP, EVE Online. Framkvæmdastjóri CCP vill ekki tjá sig um málið. 14. júní 2011 17:51
Tölvuþrjótar brutust inn á síðu CIA Hópur tölvuhakkara, sem kallar sig Lulz Security, réðst í gærkvöld á vefsíðu bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Talið er að sami hópur hafi hakkað sig í fyrradag inn á vef EVE Online sem íslenska fyrirtækið CCP á og rekur. 16. júní 2011 07:59