Vöxtur einkaneyslu ekki meiri síðan fyrir hrun 14. júlí 2011 12:02
Myndarlegur vöxtur var í einkaneyslu á öðrum fjórðungi ársins ef marka má tölur um greiðslumiðlun. Raunar benda nýjustu tölur til þess að vöxturinn hafi ekki verið jafn hraður frá því fyrir hrun. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Í nýlega birtum tölum Seðlabankans um greiðslumiðlun kemur meðal annars fram að kreditkortavelta í júní nam alls 29,1 milljörðum kr., sem jafngildir tæplega 6% aukningu að raungildi milli ára. Líkt og undanfarið var aukningin mun meiri í erlendri kreditkortaveltu (tæplega 19%) meðan innlend kreditkortavelta jókst að raungildi um 3% á milli ára. Aukning innlendrar veltu milli ára var raunar sú minnsta að raungildi frá febrúar síðastliðnum, sem er athyglisvert í ljósi þess að landinn hefur væntanlega séð fram á rýmri fjárráð í júní eftir nýgerða kjarasamninga. „Samantekin raunaukning kreditkortaveltu og innlendrar debetkortaveltu einstaklinga gefur góða mynd af þróun einkaneyslu,“ segir í Morgunkorninu. „Einföld aðhvarfsgreining bendir þannig til að einkaneysla hafi aukist um 5 - 7% að raungildi á öðrum fjórðungi ársins frá sama tímabili í fyrra. Ef rétt reynist er það hraðasta aukning einkaneyslu frá því á 1. fjórðungi ársins 2008, þegar hún reyndist 7,9% samkvæmt tölum Hagstofu. Einkaneysla óx um 1,5% á 1. fjórðungi yfirstandandi árs frá sama tíma í fyrra, og benda því framangreindar tölur til þess að vöxtur einkaneyslu á fyrri helmingi ársins hafi verið á bilinu 3 - 4%.“
Mest lesið Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira